Reykjavík - Hótel Natura

  • Hótelherbergin eru ætluð félagsfólki búsettu á landsbyggðinni.
  • Athugið: Einungis bókanlegt á skrifstofu - herbergi eru ekki í boði ef minna en vika er í bókun.
  • Lykill er afhentur í afgreiðslu Icelandair hótel Reykjavík Natura gegn framvísun samnings frá VR. Mögulegt er að kanna hvort hægt sé að fá herbergið afhent snemma dags eða í kringum kl. 10, fyrir þá sem koma snemma með flugi, en þá þarf að gera það með fyrirvara í síma 444-4503. Hótelið leitast við að uppfylla slíka beiðni hverju sinni sé það mögulegt. Skila þarf kl. 12. Gisting er fyrir tvo. Félagsfólki býðst auk þess að kaupa veitingar á hótelinu á afsláttarverði. Morgunmatur fæst með afslætti sé hann pantaður kvöldinu áður.
  • Verð á gistingu: janúar - 30. apríl, 6.900 kr. nóttin / 1. maí - 30. september 10.900 kr. nóttin / 1. október - 29. desember, 6.900 kr. nóttin.
  • Vinsamlegast afbókið fyrir kl. 16:00, 48 klukkustundum fyrir komudag ef ekki er lengur þörf á bókuninni. Að öðrum kosti verður tekið afbókunargjald að því sem nemur verði einnar nætur.

Sjá nánar um orlofskosti VR í Reykjavík hér.