Vefspjall
Hleður upp...
11. jún.
8:30 - 10:00 Hús Fagfélaganna, Stórhöfða 29
Egg Copy

Fundir

Eggið eða hænan - Opinn fundur um verðbólgu, verðlag og laun

Blikur eru á lofti í efnahagsmálum og allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Verðbólga hefur farið vaxandi, atvinnuleysi aukist og stýrivextir hækkað. Drifkraftar verðbólgu eru margir og samsetning hennar flókin en eigi að nást árangur í baráttunni er mikilvægt að auka skilning á eðli og orsökum hennar.

VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins morgunverðarfundar um verðbólgu, verðlag og laun fimmtudaginn 11. júní. Fundurinn ber yfirskriftina Eggið og hænan og freistum við þess að skoða samspil verðlags og launa og áhrif þeirra á verðbólgu.

Fundurinn verður haldinn í sal Fagfélaganna, að Stórhöfða 31 – gengið er inn bakatil. Húsið opnar kl. 8.00 með morgunverði, dagskrá hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 9.45.

Sjá nánari dagskrá og skráningu hér.