Vefspjall
Hleður upp...
18. nóv.
17:30 - 19:30 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
Mynd Einar Sveinbjörnsson

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk - Veður og ferðaskipulag 

18. nóvember kl. 17:30-19:30 (húsið opnar kl. 17:15) 
Fyrirlesari: Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur

Veður getur haft afgerandi áhrif á öryggi og framkvæmd ferða og því er mikilvægt að leiðsögufólk nýti veðurupplýsingar við skipulagningu ferða. 

Í námskeiðinu er farið yfir hvernig taka má mið af veðurspá bæði við undirbúning lengri ferða og við mat á aðstæðum til skemmri tíma. Hvaða veðurupplýsingar- og -spár gagnast best við skipulagningu langferða. Hvað þarf helst að horfa til? Hér er m.a. rætt um vindhviður sem geta leitt til lokana, hríðarbyl/skafrenning og tiltekin vindmörk.   Eins verður farið í myndun ísingar og hálku á vegum. 

Markmiðið er að efla skilning á því hvernig veðurupplýsingar nýtast leiðsögufólki til að taka upplýstar ákvarðanir um leiðarval, tímasetningar og áframhald ferðar.

Staðsetning: Hús verslunarinnar, 9 hæð.
Einnig í boði: Þátttaka í gegnum Teams 
Skráning: Skráning er skilyrði bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams.

Námskeiðið verður haldið á íslensku.

Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum.