Vefspjall
Hleður upp...
19. maí
19:30 - 21:30 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
Sævar Helgi Mynd

Fyrirlestur

Almyrkvi á sólu - Fyrirlestur fyrir félagsfólk VR

Þann 19. maí nk. verður Sævar Helgi Bragason með fyrirlestur um almyrkva á sólu sem mun sjást vel á Íslandi í sumar.

Í erindi sínu mun Sævar Helgi meðal annars fjalla um hvað sólmyrkvi á sólu er, hvenær og hve lengi hann sést og hvað ber að varast. Fræðsluerindið mun einkum nýtast þeim sem starfa við leiðsögn en er þó opið öllu félagsfólki VR. 

Í erindinu verður líka fjallað um hvernig á að fylgjast með myrkvanum á öruggan hátt, með berum augum og sjónaukum, auk þess sem sagt verður frá helstu handtökum við ljósmyndun sólmyrkva. Markmiðið er að undirbúa leiðsögufólk og aðra eins og best verður á kosið fyrir einstakt, ógleymanlegt náttúrufyrirbæri.

Félagsfólki er bent á að nauðsynlegt er skrá sig á fyrirlesturinn sem er án endurgjalds fyrir félagsfólk VR.

Fyrirlesturinn verður einnig sendur út í gegnum Teams. Athugið að fyrirlesturinn er eingöngu á íslensku. 

Skráningu lýkur kl.12:00 á hádegi þann 19. maí. Takmarkaður sætafjöldi. 

Viðburður: Almyrkvi á sólu 2026
Hvenær: 19. maí 2026 frá kl. 19:30 til 21:30.
Hvar:  VR salur á 9. Hæð í Húsi verslunarinnar og á Teams.