25. okt.
9:00-12:00 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og á Teams
Asgeir3

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk - Bestu árin

25. og 26. október kl. 9:00-12:00
Leiðbeinandi: Ásgeir Jónsson, MBA og alþjóðlega vottaður markþjálfi

Nú er tíminn til að uppskera! Hversu lengi höfum við látið okkur dreyma um allt það sem við ætluðum að gera þegar við hættum að vinna? Þetta námskeið snýst um að lifa og læra að lifa lífinu lifandi. Nú er um að gera að framkvæma og njóta og því ætlum við að skoða ýmis atriði varðandi markmiðasetningu, næringu, hugarfar og læra að lifa lífinu lifandi eftir að hefðbundnum starfsferli lýkur. Markmiðið er að þátttakendum verði ljós flest þau tækifæri sem bíða þeirra og þá möguleika sem þessi tímamót bjóða upp á.

Námskeiðið verður haldið í nýjum og glæsilegum sal VR á 9.hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Morgunmatur í boði fyrir þau sem mæta á staðinn. Einnig er hægt að taka þátt í gegnum Teams en salurinn er vel búinn tækjabúnaði fyrir blandað námskeiðahald. Veldu þann möguleika sem hentar þér hér að ofan. Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á www.vr.is. Einnig er hægt að setja viðburðinn í dagatalið sitt með því að smella á hnapp sem birtist við skráningu.