Námskeið
Námskeið fyrir félagsfólk - Starfslok og fjármál
8. október kl. 9:00-12:00
Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi
Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi fjármál við starfslok. Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
- Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
- Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
- Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?
- Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
- Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
- Hvaða skatta kem ég til með að greiða?
Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda. Björn Berg Gunnarsson er með 16 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hann stýrði meðal annars greiningardeild og fræðslumálum Íslandsbanka. Hann hefur einnig haldið yfir 300 fyrirlestra um lífeyrismál og er höfundur bókarinnar Peningar.
Námskeiðið verður haldið í sal VR á 9.hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Morgunmatur í boði fyrir þau sem mæta á staðinn. Einnig er hægt að taka þátt í gegnum Teams. Veldu þann möguleika sem hentar þér hér að ofan.
Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á www.vr.is.