Vefspjall
Hleður upp...
17. sep.
17:15 - 19:15 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
Sævar Helgi Mynd

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk VR - Norðurljósafræðsla með Sævari Helga

Viltu læra meira um eitt magnaðasta náttúrufyrirbæri Íslands? 

VR býður félagsfólki sínu á fræðslukvöld um norðurljós þar sem Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og vísindamiðlari, leiðir þátttakendur inn í heillandi heim norðurljósanna. Námskeiðið verður haldið bæði í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í beinu streymi á Teams, fimmtudaginn 17. september kl. 17:15. Húsið opnar kl. 17:00.

Námskeiðið er einkum ætlað félagsfólki sem starfar við leiðsögn, en er opið öllu fullgildu félagsfólki VR sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á norðurljósum og miðlun þeirra. 

Fjallað verður almennt um vísindin á bak við norðurljós. Rýnt verður í ýmis konar geimveðurgögn sem auðvelda leiðsögufólki að sjá norðurljós og átta sig á hvenær líkur eru á að þau kvikni. Skoðaðar verða norðurljósahviður og merki um þær í segulmælingum. Þá verður stiklað á stóru um ljósmyndun norðurljósa og tæpt á öðru sem sjá má á himni á meðan beðið er eftir norðurljósum.   

Skráning
Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku á staðnum og í gegnum Teams. Þátttakendur sem velja að taka þátt í gegnum Teams fá sendan tengil á fundinn áður en námskeiðið hefst.  

Við hlökkum til að sjá ykkur – hvort sem er á staðnum eða í fjarfundi.