Vefspjall
Hleður upp...
25. nóv.
Guðmundarlundur - Kópavogi
Jolaskogur Frettamynd

Tilkynningar

Ævintýri í Jólaskógi með VR

VR gefur félagsfólki sínu tækifæri til að upplifa ævintýraferð í Jólaskógi í aðdraganda jólahátíðarinnar. Sýningin fer fram í Guðmundarlundi og standa jolasveinar.is að sýningunni. Félagsfólk getur valið um að koma dagana 25., 26. eða 27. nóvember en með því að dreifa skemmtuninni á nokkra daga gefst fleirum tækifæri til að njóta.

Miðasala fer fram á Mínum síðum á vef VR. Miðar verða seldir með afslætti og kostar miðinn einungis 500 kr. Hámarksmiðafjöldi fyrir hvern VR félaga er 6 stk. Athugið að miðafjöldi er takmarkaður. Ekki er hægt að breyta eða skila miðum.

Miðasalan hefst þriðjudaginn 13. október 2026, kl. 10:00.

Ævintýri í Jólaskógi er sýning þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi og hitta á ferðum sínum persónur úr uppáhalds jólafjölskyldu okkar Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra. Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að skyggja.

Gönguferðin tekur tæpan klukkutíma og að henni lokinni geta áhorfendur fengið mynd af sér með jólasveini auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Áhorfendur eru beðnir að klæða sig eftir veðri, koma vel skóaðir og með vasaljós en öll þessi atriði eru nauðsynleg til að hægt sé að njóta sýningarinnar til hins ítrasta.

Sýningin er hugsuð fyrir börn fjögurra ára og eldri en að sjálfsögðu eru öll velkomin. 

Athugið að gönguleiðin er þó ekki fær kerrum eða hjólastólum. Frítt er fyrir tveggja ára og yngri. Einnig er óskað eftir að hundar séu ekki með í för, bæði svo þeir trufli ekki sýninguna eða aðra gesti.