Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
C3A7814

Almennar fréttir - 08.03.2022

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag þann 8. mars bjóða ASÍ, BHM, BSRB og fleiri samtök launafólks til hádegisfundar á Hilton Reykjavík Nordica í dag kl. 12:00–13:15. Yfirskrift fundarins er „Er vinnumarkaðurinn vaknaður? #Metoo og lægri þröskuldur”. Fundinum mun einnig verða deilt í streymi á samfélagsmiðlum og upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.

Sjá nánari upplýsingar um fundinn hér.