Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
kosningar2018.jpg

Almennar fréttir - 06.03.2018

Allsherjaratkvæðagreiðsla VR

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs til sjö sæta í stjórn VR, skv. 20 gr. laga félagsins, hófst í dag kl. 09:00, þriðjudaginn 6. mars, og lýkur kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 13. mars.

Atkvæðagreiðslan er rafræn, smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.

Valið er milli 27 frambjóðenda til stjórnar VR. Merkja skal við mest 7 frambjóðendur í stjórnarkosningum.

Hvernig þú kýst stjórn VR

  1. Smelltu á „Kosið um stjórn 2018-2020“ á www.vr.is.
  2. Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  3. Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa.

Ef þú hefur ekki Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.