Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 14.12.2020

Bókanir orlofshúsa fyrir sumarið 2021

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2021 og fram á mitt ár 2022 sem hér segir:

Þann 6. janúar 2021 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2021 (tímabilið 28. maí til 27. ágúst).

Þann 8. janúar 2021 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2018, 2019 eða 2020.

Þann 14. janúar 2021 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 27. ágúst 2021 til 3. júní 2022.

Hægt verður að bóka orlofshús rafrænt á Mínum síðum á vr.is. Einnig er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700.

Vinsamlega athugið að allar skrifstofur VR eru lokaðar og verður því ekki hægt að koma til okkar til þess að bóka. Er þetta vegna heimsfaraldurs Covid-19.