Almennar fréttir - 21.09.2020
Móttaka VR lokuð frá 21. september
Frá og með deginum í dag, mánudaginn 21. september verða skrifstofur VR lokaðar nema fyrir móttöku gagna. Á meðan verið er að ná betri tökum á útbreiðslu veirunnar mun VR eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu eða í fyrirfram bókuðum viðtölum. Þetta er gert með velferð félagsmanna að leiðarljósi.
Skrifstofur VR munu opna aftur að óbreyttu, mánudaginn 5. október. Eru þetta sérstakar ráðstafanir sökum fjölgunar smita hér innanlands.
Þeir sem eiga nú þegar bókað viðtal hjá ráðgjafa skulu mæta með grímu, spritta sig vel og virða tveggja metra fjarlægðamörk.
Einstaklingar í þjónustu hjá VIRK geta áfram haft samskipti við sinn ráðgjafa hjá VR í gegnum fjarþjónustu. Öll viðtöl fara einnig fram í gegnum fjarþjónustu á meðan skrifstofan er lokuð.