Vefspjall
Hleður upp...
MBL0291804

Almennar fréttir - 19.10.2026

Þing ASÍ gagnrýnir stjórnendur Seðlabankans

Þing Alþýðusambands Íslands, sem er nýlokið, gagnrýnir harðlega stjórnendur Seðlabanka Íslands vegna framgöngu þeirra í garð launafólks undanfarin misseri. Þingið krefst þess að þeir láti af pólitískum málflutningi gegn launafólki og virði samningsfrelsi aðila vinnumarkaðarins. Þetta kemur fram í ályktun sem VR lagði fram og var samþykkt á þinginu. 

Sjá ályktunina í heild að neðan.   

„47. þing ASÍ fordæmir framgöngu stjórnenda Seðlabanka Íslands gagnvart launafólki og samtökum þess á undanförnum misserum.  

Seðlabankinn er sjálfstæð stofnun sem á að starfa í þágu alls almennings. Sjálfstæði hans fylgir rík ábyrgð, ekki síst að gæta hlutleysis, trúverðugleika og að tala af yfirvegun og nákvæmni. Á þessu hefur orðið alvarlegur misbrestur. 

Ítrekað hafa greiningar bankans rakið verðbólgu og efnahagsástandið til hækkana opinberra gjalda, alþjóðlegs ófriðar, hrávöruverðs og óróa á mörkuðum. Seðlabankastjóri hefur hins vegar beint spjótum sínum að launum. Vísa má meðal annars til ummæla Seðlabankastjóra um að „engin fórnarlömb“ efnahagsástandsins væri að finna og hvatti hann til þess að umsömdum launahækkunum yrði frestað. 

Þá lýsti varaseðlabankastjóri peningastefnu því nýlega í viðtali að bankinn hefði skapað slaka í þjóðarbúinu, meðal annars til að aukið atvinnuleysi drægi úr áhuga á uppsögn kjarasamninga.  

Seðlabankinn hefur skaðað eigin trúverðugleika á tímum þegar trúverðugleiki skiptir sköpum. Þess í stað hafa stjórnendur bankans tekið sér stöðu gegn launafólki, sama hópi og ber þungann af hávaxtastefnu bankans. 

47.    þing ASÍ krefst þess:

  • að stjórnendur Seðlabankans láti af pólitískum málflutningi gegn launafólki og virði samningsfrelsi aðila vinnumarkaðarins,
  • að opinber málflutningur stjórnenda bankans sé í samræmi við greiningar bankans sjálfs,
  • að bankinn geri opinberlega grein fyrir því hvort ummæli varaseðlabankastjóra lýsi stefnu hans,
  • að bankaráð Seðlabankans og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis taki málið til skoðunar."

Samþykkt á 47. þingi Alþýðusambands Íslands, 16. október 2026