Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 03.01.2022

Um bókanir orlofshúsa 2022

Við viljum minna félagsfólk VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR sumarið 2022 og fram á mitt ár 2023 sem hér segir:

Þann 5. janúar 2022 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2022 (tímabilið 3. júní til 26. ágúst).

Þann 7. janúar 2022 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2019, 2020 eða 2021.

Þann 13. janúar 2022 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 26. ágúst 2022 til 2. júní 2023.

Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Einnig er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700 frá kl. 19:00 þann 5. janúar. Sökum fjölda Covid smita í samfélaginu verður ekki boðið upp á aðstoð á skrifstofum VR að þessu sinni.

Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá kl. 16:00 - 23:00 miðvikudaginn 5. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.