Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Reiknivel_1.jpg

Almennar fréttir - 02.03.2022

Vantar þig aðstoð við skattframtalið?

Félagsfólki VR býðst að nýta sér einstaklingsaðstoð sérfræðings KPMG við skattframtalið. Aðstoðin mun vera í boði 8. og 9. mars frá kl. 8:30 og til 16:00.
Hver tími er 15 mínútur.

Þjónustan verður í boði á staðnum annan daginn og í gegnum fjarleiðir hinn daginn.
8. mars – aðstoð í gegnum fjarfundarbúnað eða síma
9. mars – aðstoð hjá VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7

Athugið að nauðsynlegt er að vera búin/n að skrá sig fyrir kl. 15:00 þann 7. mars.
Nánari upplýsingar verða sendar á skráð félagsfólk deginum fyrir aðstoðina.

Smelltu hér til að velja tíma í einstaklingsaðstoð.