Vefspjall
Hleður upp...
11. nóv.
8:45 - 12:00 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
Lilja Bjarnadóttir

Trúnaðarmannanámskeið

Trúnaðarmannanámskeið - Samningatækni og sáttamiðlun á vinnustöðum

11. nóvember kl. 8:45 - 12:00   (húsið opnar kl. 08:30)
Fyrirlesari: Lilja Bjarnadóttir, LL.M. sáttamiðlari og lögfræðingur  

Athugið að námskeiðið er aðeins ætlað trúnaðarmönnum VR 

Á námskeiðinu verður farið yfir hagnýtar aðferðir í samningatækni og sáttamiðlun sem nýtast trúnaðarmönnum í daglegu starfi. Fjallað verður um hvernig undirbúa má samningaviðræður, greina hagsmuni og þarfir, byggja upp traust og ná fram niðurstöðu sem ólíkir aðilar geta sætt sig við. Áhersla verður á hagnýt verkfæri, samskipti og raunhæfar aðstæður sem trúnaðarmenn geta mætt í starfi. 

Efni námskeiðsins er gagnlegt fyrir trúnaðarmenn og því leggur VR til að allir trúnaðarmenn félagsins fari í gegnum námskeiðið.     

Námskeiðið er haldið í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 en einnig er hægt að vera með á Teams. Morgunmatur í boði fyrir þau sem mæta á staðinn. Veldu þann möguleika sem hentar þér hér að ofan.  

Leiðbeinandi er Lilja Bjarnadóttir, LL.M. sáttamiðlari og lögfræðingur. Lilja er eigandi Sáttaleiðarinnar ehf. og annar stofnanda Sáttamiðlaraskólans.