Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG

Almennar fréttir - 11.02.2019

Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR 2019-2021

Framboðsfrestur vegna formanns- og stjórnarkjörs VR rann út á hádegi í dag, 11. febrúar 2019.

Kjörstjórn VR hefur úrskurðað eitt einstaklingsframboð til formanns VR fyrir kjörtímabilið 2019-2021 löglega fram borið en það er framboð Ragnars Þór Ingólfssonar og er hann því sjálfkjörinn formaður VR til næstu tveggja ára. Önnur framboð til formanns bárust ekki.

Þá hefur kjörstjórn VR fengið 16 einstaklingsframboð til stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2019-2021 og vinnur í að kanna lögmæti þeirra.

Fundur verður haldinn með frambjóðendum kl. 12:00 miðvikudaginn 13. febrúar nk. og verða nöfn frambjóðenda birt á vef VR að honum loknum.

Alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í varastjórn.