Vefspjall
Hleður upp...

Fyrirtæki ársins 2026

Skráning fyrirtækja í könnun VR á Fyrirtæki ársins er hafin. Könnunin er ítarleg greining á líðan starfsfólks og í henni felst einstakt tækifæri til að fá samanburð við önnur fyrirtæki í atvinnulífinu. Könnunin verður send út á íslensku, ensku og pólsku.  

Til að fyrirtækið þitt komi til greina í valinu á Fyrirtæki ársins 2026 þarf fyrirtækið að tryggja öllu starfsfólki, óháð stéttarfélagsaðild, þátttökurétt í könnuninni. Senda þarf lista þó allt starfsfólk fyrirtækisins sé í VR því þannig tryggir þú þátttöku fyrirtækisins í valinu á Fyrirtæki ársins 2026.  

Við bendum á að ef allt starfsfólk í þínu fyrirtæki er í VR er könnunin ykkur að kostnaðarlausu! Fyrirtæki bera þannig ekki kostnað vegna þátttöku starfsfólks sem er í VR en geta óskað eftir því að starfsfólk utan VR fái þátttökurétt. Upplýsingar um hóflegan kostnað fyrirtækis við þátttöku starfsfólks sem er utan VR má finna á vr.is/2026.

Hvernig tekur fyrirtækið þitt þátt?

Fyrirtæki sem veita öllu starfsfólki tækifæri til þátttöku þurfa að senda upplýsingar um eftirfarandi fyrir 23. janúar 2026:

  • Kennitölur, nöfn, netföng og farsímanúmer alls starfsfólks – bæði þess sem er í VR og utan félagsins.
  • Nafn og kennitölu þíns fyrirtækis.

Vinsamlega athugið að innsending gagna frá fyrirtækjum verður með breyttu sniði í ár. Fyrirtæki fá aðgang að lokuðu svæði hjá Gallup þar sem hægt er að hlaða inn upplýsingum, en þar verður einnig hægt að nálgast niðurstöður að könnuninni lokinni.

Til að skrá fyrirtækið til þátttöku í könnuninni, vinsamlega sendu póst til fyrirtaekiarsins@gallup.is

Allar nánari upplýsingar veita Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is) og Sólveig Lilja Snæbjörnsdóttir umsjónaraðili könnunarinnar hjá VR (2026@vr.is

Til að fyrirtækið þitt komi til greina í valinu á Fyrirtæki ársins 2026 þarf fyrirtækið að tryggja öllu starfsfólki, óháð stéttarfélagsaðild, þátttökurétt í könnuninni. Senda þarf lista þó allt starfsfólk fyrirtækisins sé í VR því þannig tryggir þú þátttöku fyrirtækisins í valinu á Fyrirtæki ársins 2026. Könnunin er eingöngu rafræn og send út á íslensku, ensku og pólsku.

Hver er kostnaður við þátttökuna?
Ef allt starfsfólk í þínu fyrirtæki er í VR er könnunin ykkur að kostnaðarlausu! Fyrirtæki bera þannig ekki kostnað vegna þátttöku starfsfólks sem er í VR en geta óskað eftir því að starfsfólk utan VR fái þátttökurétt. Kostnaður fyrirtækis við þátttöku starfsfólks sem er utan VR er sem hér segir (tölur án vsk.):

  • Minni fyrirtæki (starfsfólk er færra en 29) – 59.900 kr.
  • Meðalstór fyrirtæki (starfsfólk er 30–69) – 86.400 kr.
  • Stærri fyrirtæki (starfsfólk er 70 eða fleira) – 106.300 kr.

Að auki bætast 490 kr. við fyrir hvern starfskraft sem ekki er í VR.
Þá geta fyrirtæki einnig keypt skýrslu með niðurstöðum fyrirtækisins sem tilbúin er til kynningar fyrir starfsfólk. Skýrslu fylgir ráðgjöf fyrir stjórnendur, fyrirtækinu að kostnaðarlausu.

Fyrirtæki ársins kynnt í maí 2026
Í maí 2026 verður tilkynnt hvaða fyrirtæki hafa orðið fyrir valinu sem Fyrirtæki ársins. Valið byggir á niðurstöðum níu lykilþátta í könnuninni. Fyrirtæki í fimmtán efstu sætunum í hverjum stærðarflokki fá titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki, alls 45 talsins, þar með talin vinningsfyrirtækin sjálf.

Þá verða einnig valin Fjölskylduvænustu fyrirtækin en val þeirra byggir á viðhorfi starfsfólks til þátta eins og sveigjanleika og getu til þess að samræma vinnu og einkalíf. Sömuleiðis verður veitt Fræðsluviðurkenning VR sem byggir á viðhorfi starfsfólks til sí- og endurmenntunarmála innan fyrirtækisins og tækifæra til starfsþróunar.

Niðurstöður allra fyrirtækja sem ná lágmarkssvörun (7 svör eða 35%) eru birtar opinberlega á vef VR, hvort sem allt starfsfólk hefur haft tækifæri til þátttöku eða ekki.