Vefspjall
Hleður upp...

Taktu þátt!

Nú er könnun VR á Fyrirtæki ársins lokið. Niðurstöður verða kynntar 13. maí á vef VR.

Fylgstu með!

Um Fyrirtæki ársins

Valið byggir á niðurstöðum níu lykilþátta í könnuninni. Fyrirtæki í fimmtán efstu sætunum í hverjum stærðarflokki fá titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki, alls 45 talsins, þar með talin vinningsfyrirtækin sjálf.

Þá verða einnig valin Fjölskylduvænustu fyrirtækin en val þeirra byggir á viðhorfi starfsfólks til þátta eins og sveigjanleika og getu til þess að samræma vinnu og einkalíf. Sömuleiðis verður veitt Fræðsluviðurkenning VR sem byggir á viðhorfi starfsfólks til sí- og endurmenntunarmála innan fyrirtækisins og tækifæra til starfsþróunar.

Niðurstöður allra fyrirtækja sem ná lágmarkssvörun (7 svör eða 35%) eru birtar opinberlega á vef VR, hvort sem allt starfsfólk hefur haft tækifæri til þátttöku eða ekki.