Vefspjall
Hleður upp...

Spurt og svarað um orlof leiðsögufólks

Hér er að finna helstu spurningar sem leiðsögufólk gæti haft varðandi orlof.

Það er von okkar að þú finnir svar við þinni spurningu hér. Ef þú færð ekki svar við því sem þú ert að leita eftir þá bendum við þér á að hafa samband við kjaramálasvið VR í síma 510 1700 eða í tölvupósti á kjaramal@vr.is

  • Lágmarksorlof er skv. lögum 24 virkir dagar á heilu orlofstímabili sem gera 10,17% orlofslaun af öllu kaupi.

    Frá og með 1. maí 2024 er uppsöfnun orlofsréttinda með eftirfarandi hætti fyrir orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2025:

    • Starfskraftur með 8 ára starfsreynslu eða 5 ár hjá sama fyrirtæki skal hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59%. 
    • Starfskraftur með 12 ára starfsreynslu eða 10 ár hjá sama fyrirtæki skal hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%. 

    Frá og með 1. maí 2025 er uppsöfnun orlofsréttinda með eftirfarandi hætti fyrir orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026:

    • Starfskraftur með 5 ára starfsreynslu skal hafa 27 daga og skulu orlofslaun vera 11,59%.
    • Starfskraftur með 10 ára starfsreynslu skal hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.

    1.650 vinnustundir eru ígildi eins árs í starfsreynslu í framangreindum skilningi. Til vinnustunda í þessum skilningi teljast allar unnar stundir við leiðsögn en leiðsögufólk getur þurft að sýna fram á starfsreynslu sína krefjist atvinnurekandi þess.

  • Orlof er alltaf tekið í samráði við stjórnanda. Orlofið skal vera skipulagt að lágmarki mánuði áður en það á að hefjast. Atvinnurekandi á að reyna að verða við óskum starfskraftsins að svo miklu leyti sem unnt er vegna starfseminnar og skal hann veita ótímabundnu ráðnu starfsfólki að lágmarki 14 daga orlof í einu lagi á tímabilinu 1. apríl til 30. september.

    Ef starfsfólk fær ekki að taka orlof á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september, á það að fá 25% lengingu á þann hluta orlofs sem veitt er utan ofangreinds tíma eða greiðslu sem því nemur.

  • Heimilt er með samkomulagi milli starfskrafts og atvinnurekanda að fella niður eða lækka orlofs- og/eða desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn sem tekur mið af launum hvers og eins. Fríið á að vera veitt í heilum eða hálfum dögum.

    Dæmi: Mánaðarlaun eru 550.000 kr. fyrir fullt starf í dagvinnu. Dagkaupið er því 25.381 kr. (550.000 kr. / 21,67). Desemberuppbót ársins 2026 er 114.000 kr. Því geta aðilar samið um að starfskrafturinn fái 4 frídaga á launum (25.381 kr. x 4) auk þess sem eftirstöðvar eru þá greiddar þ.e. 12.477 kr.

  • Með samkomulagi við atvinnurekanda er hægt að taka áunnið og uppsafnað orlof á uppsagnarfresti. Slíkt verður þó einungis gert með gagnkvæmu samkomulagi atvinnurekanda og starfskrafts þar sem meginreglan er sú að orlof og uppsagnarfrestur getur ekki farið saman.

    Það að orlof og uppsagnarfrestur fara ekki saman þýðir að uppsagnarfrestur lengist sem því orlofi nemur sem tekið er á uppsagnarfrestinum.

  • Orlofslaun fyrnast ekki milli ára. Starfskraftur hefur hins vegar ekki heimild til að flytja orlofsdaga milli ára nema í samráði við sinn stjórnanda, sem þá greiðir ótekna orlofsdaga út frá fyrra orlofsári ef hann heimilar ekki að dagarnir séu færðir á nýtt orlofsár.

    Ef aðilar semja um að flytja daga yfir á nýtt orlofsár ráðleggjum við að það samkomulag sé gert skriflega.

  • Samkomulag við atvinnurekanda ræður hvenær orlof skal tekið. Atvinnurekandi skal leitast við að taka tillit til óska starfskrafts um orlofstöku. Atvinnurekandi hefur jafnframt endanlegt ákvörðunarvald um orlofstöku. Hann verður að tilkynna starfskrafti um tilhögun orlofstöku a.m.k. mánuði áður en orlof hefst.

  • Dagkaup reiknast þannig að deilt er í mánaðarlaun með 21,67, meðalfjölda virkra vinnudaga í mánuði. Alls eru virkir dagar á ári 260 og er þeim deilt í fjölda mánaða, 260/12 = 21,67.

  • Starfskraftur í hlutastarfi á sama rétt og sá sem er í fullu starfi, en ávinnsla orlofslauna fer eftir starfshlutfalli/launum á ávinnslutímabili.

  • Lögbundið fæðingarorlof telst til starfstíma þegar áunnin réttindi eru reiknuð. Sjá nánar spurt og svarað á vef Fæðingarorlofssjóðs.

    Um fæðingar- og foreldraorlof fer skv. lögum nr. 144/2020 um sama efni.

    Þegar starfsfólk hefur starfað hjá sama atvinnurekanda í eitt ár áður en það fer í fæðingarorlof á það rétt á því að fá greidda orlofsuppbót og desemberuppbót í lögbundna fæðingarorlofinu.

  • Leiðsögufólk sem samkvæmt ósk atvinnurekanda fær ekki sumarfrí á þeim tíma sem kjarasamningur gerir ráð fyrir að sumarfrí sé almennt tekið, þ.e. á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september ár hvert, skal fá 25% lengingu á þann hluta orlofs sem veitt er utan ofangreinds tíma eða greiðslu sem því nemur.

    Ekki kemur lenging á orlof sem veitt er utan orlofstökutímabils að ósk starfskrafts.

  • Þegar starfskraftur hættir hjá einu fyrirtæki og hefur störf hjá öðru þá á hann rétt á því að taka orlof hjá nýja atvinnurekandanum eftir því sem við á þ.e. 24 eða fleiri daga á hefðbundnu orlofstímabili. Nýi atvinnurekandinn verður að heimila og semja við starfskraftinn um orlof og eru orlofslaun starfskraftsins mögulega að hluta greidd eftir ávinnslu frá nýja atvinnurekandanum en að öðru leyti við uppgjör á áunnu og uppsöfnuðu orlofi hjá fyrrum atvinnurekanda.

  • Orlof skal reikna á öll laun hvaða nafni sem þau nefnast. Þegar starfskraftur fær auka greiðslur eins og t.d. bónus skal greiða orlof einnig á þær greiðslur.

    Orlof reiknast þó ekki á orlofs- og desemberuppbætur né þær greiðslur sem eru beinlínis ætlaðar til að greiða útlagðan kostnað starfskrafts, s.s. akstursgjald og dagpeninga.

  • Starfsfólk safnar orlofi fyrir þann tíma sem það fær veikindadaga greidda frá atvinnurekanda. Orlof er greitt á öll laun og áttu því alltaf rétt á orlofi fyrir þau laun sem þú færð, hvort sem launin eru vegna vinnu, veikinda eða vegna launa í uppsagnarfresti.

    Ef veikindi eru ekki greidd af atvinnurekanda heldur t.d. sjúkrasjóði, safnast ekki orlof fyrir þann tíma þar sem orlof safnast einungis fyrir þann tíma sem laun frá atvinnurekandi eru greidd fyrir.

  • Starfskraftur á rétt á að fá orlofið bætt jafnlengi og starfskrafturinn getur ekki notið frísins vegna veikinda eða slyss ef veikindin eða áverkar vegna slyssins standa samfellt yfir lengur en í 3 sólarhringa og tilkynningarskyldu er fullnægt.

    Starfskraftur þarf að tilkynna atvinnurekanda strax á fyrsta degi að hann geti ekki notið frísins og láta vita frá hvaða lækni hann muni koma með læknisvottorð.

  • Þegar starfskraftur, sem ekki er ráðinn sem staðgengill stjórnanda, leysir stjórnanda sinn af í störfum t.d. vegna orlofs eða veikinda og sú afleysing stendur yfir í eina viku eða lengur, skal undirmaður eiga rétt til umbunar fyrir slíka afleysingu með hliðsjón af þeirri ábyrgð og því starfsálagi sem hann verður fyrir. Aðilar skulu semja um slíka umbun áður en til afleysingar kemur.

  • Orlofstökutímabil skv. kjarasamningi leiðsögufólks er 1. apríl – 30. september ár hvert. Því geta atvinnurekendur ekki komið því þannig fyrir að starfsfólki sé skikkað í frí utan hins hefðbundins orlofstímabils nema gegn 25% lengingu á þann hluta orlofsins sem veittur er utan orlofstímabilsins. 

  • Samkvæmt orlofslögum skal orlof ákveðið með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara, nema báðir aðilar séu samþykkir öðru. Ef búið er að samþykkja orlof getur hvorki atvinnurekandi né starfsfólk  tekið samþykkið einhliða til baka.

  • Orlof skv. 1. gr. laga um orlof nr. 30/1987 skal reiknað ofan á öll laun. Að lágmarki er um að ræða 24 daga orlof fyrir heilsársstarf, eða 10,17% orlofslaun. 

    Orlof fer eftir starfstíma í starfsgrein en hægt er að semja sérstaklega um aukið orlof.

    Hægt er að reikna og greiða orlof á tvo vegu:

    Orlofslaun/orlofsgreiðslur eru greiddar starfskrafti þegar hann fer í orlof. Ávinnsla orlofsstunda ætti að koma fram á launaseðli. Leiðbeiningar um útreikning orlofsstunda er að finna hér fyrir neðan í spurningunni um hvernig reikna skuli orlofsstundir.

    Mögulegt er að samningur hafi verið gerður um vörslu orlofslauna við tiltekinn banka. Þá er orlof reiknað við hver mánaðamót og lögð inn á sérstakan orlofsreikning. Útreikningur orlofslauna kemur þá ávallt fram á launaseðli og sést þar hvað orlofið er mikið og svo hversu mikið er dregið frá launum og lagt í banka. Uppsöfnun orlofslauna inn á orlofsreikningi kemur þá einnig fram á launaseðli. Orlofslaun eru svo greidd inn á reikning starfskraftsins frá bankanum fyrir 15. maí ár hvert og dekkar sú upphæð frítöku starfskraftsins.

    Þegar orlof er lagt í banka gilda sömu reglur um orlofstöku þ.e. aðilar verða að semja um hvenær orlofið er tekið. Þegar starfskraftur er í orlofi og nýtir fyrir þann tíma orlofslaun sem greidd voru í banka telst sá tími til starfstímans.

    Þegar orlofslaun eru greidd út með launum bendum við félagsfólki okkar á að fara fram á að orlofslaunin séu greidd í banka.

    Starfskraftur í hlutastarfi á sama rétt og fólk í fullu starfi en ávinnsla orlofslauna fer eftir starfshlutfalli/launum á ávinnslutímabili.

  • Þegar starfskraftur hættir störfum hjá atvinnurekanda ber að greiða út áunnið og uppsafnað orlof, skv. 8. gr. laga um orlof nr. 30/1987.

    Ávinnsla orlofs er að lágmarki 24 dagar fyrir heilsársstarf, eða 10,17% orlofslaun.  Fólki er oft tamt að deila þeim dagafjölda með 12 mánuðum og finna þannig út að uppsöfnun orlofs sé 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð. Sú aðferðarfræði gengur upp nýti starfskraftur orlofsrétt sinn á orlofstímabilinu, 1. apríl – 30. september, og sé hann í starfi allt ávinnslutímabilið, þ.e. 1. maí  - 30. apríl ár hvert. Skv. lögum um orlof er orlof ekki reiknað á orlof. Ef starfskraftur hefur einungis unnið í 6 mánuði hjá atvinnurekanda skal reikna áunnið orlof í orlofsstundir (sjá nánar um útreikning orlofsstunda hér að neðan) og margfalda með tímakaupi í dagvinnu við starfslok ef laun hafa breyst á þessum tíma. Ef laun eru þau sömu þessa 6 mánuði er í lagi að margfalda summu greiddra launa með 10,17% orlof (sé miðað við lágmarksorlofsrétt) þar sem þau orlofslaun verða þá þau sömu og séu orlofslaun reiknuð í orlofsstundir samkvæmt kjarasamningi.

    Dæmi:
    Starfskraftur er með 500.000 kr. mánaðarlaun. Ef reiknað er með 2 dögum fyrir hvern unnin mánuð á starfskraftur eftir 6 mánuði 12 daga í orlof margfaldað með 23.073 kr. sem er kaup pr. dag (500.000 kr. deilt með 21,67 sem er deilitala til að finna dagvinnukaup). Dagvinnukaupið er svo margfaldað með 12 = 276.876 kr. Summa launa 500.000 kr. í 6 mánuði er 3.000.000 kr. Sú upphæð margfölduð með 10,17% orlofi er 305.100 kr. Þarna sjáið þið að ef starfskraftur fer ekki í neitt orlof þá fær starfskraftur of lág orlofslaun ef miðað er við 2 daga hvern mánuð og starfskrafturinn vinnur ekki allt ávinnslutímabil orlofsins. Réttara er því að reikna orlofslaunin með orlofshlutfalli hafi launin ekki tekið breytingum á starfstímabilinu, eða orlofsstundum hafi launin tekið breytingum.

  • Leiðsögumaður er með 550.000 kr. í mánaðarlaun. Orlof er 10,17% þar sem starfskrafturinn er með 24 daga orlofsrétt.

    Orlofinu er breytt í uppsafnaðar orlofsstundir á mánuði með því að deila orlofslaunum með gildandi dagvinnutímakaupi, sem í þessu dæmi er 3.384,62 kr. (550.000 kr./162,5). Þannig eru orlofsstundir vegna maímánaðar samtals 16,53 orlofsstundir (550.000 kr. x 10,17% / 3.384,62 kr.). Hver nýttur orlofsdagur er 7,5 klst. sé unnið fimm daga vikunnar.

    Ef starfskraftur vinnur yfirvinnu er orlof af yfirvinnu yfirleitt reiknað í hverjum mánuði og greitt í banka. Hægt er að taka tillit til yfirvinnunnar í uppsöfnun orlofsstunda. Ef leiðsögumaður vinnur sér inn 50.000 kr. yfirvinnu þá er orlofsstundaávinnslan í því tilfelli 18,03 sem reiknast á eftirfarandi hátt 550.000 kr. mánaðarlaun + 50.000 kr. yfirvinna margfaldað með 10,17% orlofslaun og deilt með tímakaupi í dagvinnu sem er 3.384,62 kr.

    Þegar starfskraftur tekur orlof einn mánuð og fær greidd orlofslaun þann mánuðinn þá er engin uppsöfnun orlofsstunda þann mánuðinn því orlof reiknast ekki á orlof.

    Ef starfskraftur nýtir t.d. 5 daga í orlof einn mánuðinn þá er ávinnsla orlofsstunda skv. kjarasamningi lægri en reiknað hefur verið hér að ofan því orlof reiknast ekki á orlof.

    Höldum áfram með dæmi fyrir leiðsögumann þar sem ávinnsla er 16,53 orlofsstundir fyrir unninn mánuð í dagvinnu. Ef sá starfskraftur tekur 5 vinnudaga í frí er orlofsstundauppsöfnunin þann mánuðinn reiknuð með eftirfarandi hætti: 550.000 kr. umsamin laun – 126.904 kr. sem eru þá orlofslaunin fyrir þessa 5 daga (orlofslaunin eru reiknuð þannig að mánaðarlaun 550.000 kr. er deilt með 21,67 til að finna kaup pr. dag sem er þá 25.381 kr. Sú upphæð er svo margfölduð með 5 dögum sem starfskrafturinn er í orlofi). Þannig standa þá 423.096 kr. eftir (550.000 kr. – 126.904 kr.) eða 12,71 orlofsstundir (423.096 x 10,17% / 3.384,62 kr.).

    Yfir orlofsárið gæti því sá sem vinnur hér að ofan sem leiðsögumaður hafa áunnið sér samtals 180 orlofsstundir (10,89 mán. x 16,53 orlofsstundir.). Hvert orlofsár telur 12 mánuði þ.e. frá 1. maí til 30. apríl þar sem gert er ráð fyrir að á þessum mánuðum fari starfskrafturinn í 24 daga orlof er einungis reiknað með 10,89 mánuðum í starfi en ekki 12.