Að verða leiðtogi
Að verða hluti af stjórnendateyminu getur leitt til aukinnar ábyrgðar og þess að vera ekki lengur hluti af ákveðnum hópi á vinnustaðnum. En það getur einnig leitt til meira frjálsræðis og áhugaverðra áskorana.
Sumir verða leiðtogar af því að þeir eru með innri hvata sem leiða þá þangað. Aðrir eru hvattir til þess af öðrum.
Hér eru sjö góð ráð til þeirra sem vilja gjarnan verða leiðtogar:
Settu þér markmið. Það getur verið að stýra verkefni, sjá um að skipuleggja áberandi viðburð, þjálfa nýjan starfsmann, fá ný verkefni, verða sýnilegri stjórnendum á þínum vinnustað eða hreinlega að verða leiðtogi innan ákveðinna fjölda ára.
Finndu einhvern sem getur leiðbeint þér. Einhvern sem þú berð virðingu fyrir og þú getur sótt ráð og stuðning til.
Skoðaðu námskeið og menntunarmöguleika. Íhugaðu hvaða námskeið gætu undirbúið þig fyrir leiðtogahlutverkið. Gæti leiðtoganámskeið hentað? Gæti markþjálfun hjálpað þér? Er nýtt námskeið í verkefnastjórnun fyrir þig?
Ræddu við fólkið þitt. Segðu þínu nánasta fólki frá draumum þínum. Fjölskylda, vinir og náið samstarfsfólk getur haft dýrmæta vitneskju um þig sem manneskju og mögulegan leiðtoga. Þú getur notað hana til þess að vera meðvituð/aður um þínar góðu hliðar sem og þær hliðar sem fela í sér meiri áskorun. En ekki láta það draga úr þér ef þau sjá ekki endilega leiðtoga í þér.
Æfðu þig í leiðtogahlutverkinu. Nýttu öll tækifæri sem birtast. Það gæti verið t.d. í foreldrastarfi, sem þjálfari eða skipuleggjandi.
Leitaðu þekkingar um leiðtogi. Lestu bækur um leiðtogahlutverkið, ræddu um hlutverk leiðtoga við samstarfsfólk þitt, fylgstu með lausum stjórnendastöðum, íhugaðu hvað leiðtogahlutverkið þýðir fyrir sjálfa/n þig.
Gríptu tækifærið þegar það gefst.
Svona er góður leiðtogi
Góður leiðtogi býr yfir þó nokkrum persónulegum og faglegum eiginleikum.
Góður leiðtogi:
- Býr yfir heilindum
- Er góður að miðla málum
- Einblínir á manneskjuna
- Er framsýnn
- Er áhugasamur
- Tekur ákvarðanir
- Tekur þátt
- Sýnir gott fordæmi
- Hvetur starfsfólk til dáða
- Er sérfræðingur
- Er hugrakkur
Kostir og gallar
Í starfi leiðtogans getur þú haft áhrif á það hvernig þú forgangsraðar í vinnunni. Þrátt fyrir að flestir stjórnendur eigi venjulega vinnuviku, þá er mikil krafa um að inna gott starf af hendi og vera til taks.
Hér eru þrír hlutir sem þú ættir að meta áður en þú sækist eftir leiðtogahlutverki:
Hvers máttu vænta af stjórnendahlutverki?
- Aukin ábyrgð
- Meiri áhrif
- Sveigjanleiki innan eigin vinnudags
- Tækifæri til þess að stjórna skipulagi dagsins
Hvað gætir þú misst?
Sérfræðihlutverkið. Sem stjórnandi eru verkefni þín almennari, þ.e.a.s. þú átt að hvetja og skapa ávinning í gegnum aðra.
Frí utan vinnutíma. Sem stjórnandi getur þú átt á hættu að fá símtal að nóttu til, ef eitthvað mikið liggur við. Þú átt að sjá um að spilið gangi upp. Aðrir gera þá kröfu til þín sem getur haft áhrif á frítíma þinn.
Að vera hluti af hóp. Að fara frá því að vera samstarfsmaður til þess að verða stjórnandi getur verið erfitt, ef þú varst áður „ein/n af hópnum“. Þú sem leiðtogi þarft að geta tekið ákvarðanir sem gætu haft neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir aðra.
Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar?
- Hvaða eiginleikum býrð þú yfir sem gætu nýst í leiðtogahlutverkið?
- Hvaða eiginleikar gætu verið áskorun fyrir þig í leiðtogahlutverkinu?