Úthlutun orlofshúsa hjá VR fyrir sumarið 2026 fer svona fram:
- VR félagi fer á Mínar síður og sækir um þrjá valkosti sem hann raðar í fyrsta, annað og þriðja sæti eftir því hvað hann myndi helst vilja.
- Hámarksleiga er ein vika á sumri fyrir hvern félaga.
- Úthlutunarkerfi dregur af handahófi út félagsfólk sem fær sendan tölvupóst að úthlutun lokinni.
- Séu tímabil laus eftir að úthlutun lýkur gildir fyrst koma fyrst fá.
Mikilvægar dagsetningar fyrir sumarúthlutun:
- Opnað verður fyrir umsóknir þann 8. janúar.
- Lokað fyrir umsóknir þann 31. janúar.
- Það skiptir ekki máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út.
- 2. febrúar er dregið af handahófi í gegnum úthlutunarkerfið.
- Þau sem fá úthlutað orlofshúsi fá sendan tölvupóst.
- Félagsfólk hefur til 12. febrúar að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður.
- Þegar gengið hefur verið frá greiðslum fyrir úthlutun verður orlofseignum sem ekki fóru í útleigu aftur úthlutað þann 16. febrúar.
- Þau sem fá úthlutað orlofshúsi fá sendan tölvupóst.
- Félagsfólk hefur til 22. febrúar til að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður.
- Sama regla verður viðhöfð og áður að félagsfólk sem hefur tekið orlofshús á leigu einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur ekki sótt um í sumarúthlutun en getur sótt um laus hús 26. febrúar kl. 10:00 þegar opnað verður fyrir almennar bókanir
Sumarúthlutun félagsins er ekki lengur bundin við einn dag í janúar eins og tíðkast hefur síðustu ár en breytingar voru gerðar á úthlutunarreglum félagsins árið 2024.
Sjá ítarlegri reglur og skilmála hér.