Niðurgreiðsla ferðavagna

VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla eða hjólhýsi af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki sex nætur fyrir hvert orlofstímabil, hámarksendurgreiðsla er því 30.000 kr. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun.

Vakin er athygli á því að félagsfólk getur ekki nýtt sér slíka endurgreiðslu með öðrum orlofstengdum valkostum félagsins, það er að segja niðurgreiðslu á gistingu eða bókun á orlofshúsi sumarið 2024. Sækja þarf um styrkinn fyrir 20. desember ár hvert, eftir það er lokað fyrir umsóknir.

Félagsfólk er beðið um að hafa eftirfarandi í huga vegna tekjuskatts af þessum styrkjum:
Ekki skal telja til tekna starfskrafts greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við leigu á orlofshúsnæði eða með öðrum hætti til greiðslu á orlofsdvöl, að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 55.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfskraftur/VR félagi leggi fram fullgilda og óvéfengjanlega reikninga fyrir greiðslu á kostnaði vegna orlofsdvalar þessarar.

Athugið : Með umsókn þarf að fylgja leigusamningur eða reikningur útgefinn af söluaðila þar sem fram kemur nafn og kennitala VR félaga, leigudagar og greidd upphæð.