Almennar fréttir - 14.08.2026
Vanræksla fyrirtækja og stjórnvalda leiðir til forsendubrests kjarasamninga
Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga munu bresta. Stjórn lýsir sig reiðubúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega.
Við undirritun gildandi kjarasamninga féllst launafólk á launahækkanir undir verðbólgu í trausti þess að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og stjórnvöld stilltu gjaldskrárhækkunum í hóf. Vonir stóðu til að þetta myndi leiða til lækkunar á verðbólgu og vöxtum. Andstætt fyrirheitum sínum hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað gjaldskrár úr hófi fram og stór fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif hafa aukið við hagnað sinn á verðbólgutímum.
Stjórn VR hafnar alfarið þeim málflutningi fulltrúa úr röðum ríkisstjórnar og atvinnurekenda að forsendur kjarasamninga séu í reynd ekki brostnar þar sem kaupmáttur launa hafi aukist og að verðbólguna megi rekja til utanaðkomandi þátta. Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðlag, auk þess sem launafólk, ekki síst barnafólk, situr uppi með gríðarlegan húsnæðiskostnað vegna svimandi hárra stýrivaxta. Vaxtagreiðslur fjölda heimila hafa tvöfaldast á gildistíma kjarasamninganna og það eykur enginn kaupmátt sinn í slíkum aðstæðum nema skuldlaust eignafólk. Verðbólgan er að stofninum til heimatilbúinn vandi sem á rætur að rekja til óstjórnar í húsnæðismálum og óhóflegra verð- og gjaldskrárhækkana. Takast verður á við innlendu verðbólguna af fullum þunga til að skapa skilyrði fyrir samhentu átaki þegar utanaðkomandi áföll dynja á.
Stjórnvöld og fyrirtæki hafa vanrækt skyldur sínar gagnvart kjarasamningum og mánuðum saman hefur VR bent á í hvað stefnir og kallað eftir aðgerðum. Við því ákalli hefur ekki verið brugðist, þvert á móti hafa bæði gjaldskrár- og verðhækkanir haldið áfram sl. mánuði, atvinnuleysi aukist og allt bendir til þess að verðbólgan hækki fremur en hitt.
Stjórn VR
13. ágúst 2026