Almennar fréttir - 12.08.2026
Langvarandi vaxtaverkir
Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu
Í tæplega fjögur ár hafa stýrivextir verið mjög háir á Íslandi með það að markmiði að draga úr verðbólgu. Það hefur ekki gengið eftir, undanfarið ár hefur verðbólgan þvert á móti hækkað. Háir stýrivextir koma harðast niður á þeim sem skulda, þeim sem leigja og ekki síst barnafólki. Nú er tímabært að staldra við og skoða hvort þessi stefna þjóni tilgangi sínum.
VR, LÍV og Fagfélögin boða til opins fundar um samspil stýrivaxta og verðbólgu. Lykilfyrirlesari er Jaya Sood, hagfræðingur hjá New Economics Foundation í Bretlandi, og mun hún fjalla um kosti og galla stýrivaxta sem stjórntæki til að ná tökum á verðbólgu. Að því loknu ræðir Halla Gunnarsdóttir við þá Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar og Jón Sigurðsson, forstjóra Stoða.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði VR í Kringlunni 7 miðvikudaginn 19. ágúst og hefst kl. 11.00.