Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG

Almennar fréttir - 25.03.2021

Móttaka VR lokuð vegna COVID-19

Afgreiðsla VR verður lokuð frá og með fimmtudeginum 25. mars. Vegna útbreiðslu COVID-19 mun VR eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu. Þetta er gert með velferð félagsmanna að leiðarljósi.

Flesta þjónustuþætti VR má nálgast rafrænt en einnig er hægt að fá þjónustu í gegnum síma, 510 1700, tölvupóst, vr@vr.is og á Facebooksíðu félagsins. Öllum fyrirspurnum er svarað eins fljótt og auðið er á opnunartíma skrifstofu, kl. 8.30-16.00. 

Sjúkrasjóður

Sótt er um sjúkradagpeninga á Mínum síðum og er mikilvægt að hengja öll fylgigögn með umsókninni.

Ef sækja þarf um dánarbætur vegna félagsmanns er hægt að nálgast umsóknareyðublaðið hér. Skanna þarf inn umsókn og fylgigögn og senda á netfangið sjukrasjodur@vr.is. Hægt er að sækja um dánarbætur barna á Mínum síðum. Sjá nánari upplýsingar um dánarbætur hér.

Hægt er að koma til okkar pappírum, vottorðum og öðrum fylgigögnum með því að skanna þau inn og senda á sjukrasjodur@vr.is.

VR varasjóður og starfsmenntasjóðir

Á Mínum síðum sækir þú rafrænt um í VR varasjóð og starfsmenntasjóði.

Kjaramál

Hægt er að hafa samband við ráðgjafa kjaramálasviðs í síma 510 1700. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið kjaramal@vr.is.

Orlofshús

Á Mínum síðum er hægt að skoða og bóka orlofshús á orlofsvef félagsins, sjá hér. Fyrirspurnir má senda á netfangið orlofshus@vr.is.

VIRK

Einstaklingar í þjónustu hjá VIRK eiga áfram samskipti við sinn ráðgjafa hjá VR. Ráðgjafar munu hafa samband varðandi tilhögun viðtala.

Athugið að næstu þrjár vikur mun ekki verða hægt að leigja orlofshús sem skilað er inn.