Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
tjaldsvæði-2

Almennar fréttir - 14.05.2021

Mundu eftir orlofsuppbótinni þinni

Orlofsuppbót félagsmanna VR er 52.000 kr. árið 2021, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2020 til 30. apríl 2021.

Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Smelltu hér til að reikna út orlofsuppbótina þína.