Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
VR HAX PNG

Almennar fréttir - 15.04.2020

Spurningaleikur VR og HAX á morgun

VR verður styrktaraðili í spurningaleiknum HAX á morgun, fimmtudaginn 16. apríl kl. 21.00 en félagið leggur til verðlaunaféð, 50.000 kr.
HAX er spurningaleikur í beinni útsendingu en til þess að taka þátt ná keppendur í appið HAX í gegnum Google Play Store eða App Store. Verðlaun eru í boði fyrir sigurvegarana að hverju sinni.

Líkt og allt samfélagið hefur VR þurft að draga úr samkomum þar sem fleiri en 20 manns koma saman. Það hefur því þurft að fresta allnokkrum viðburðum.
VR leitar því leiða til þess að nálgast félagsmenn sína og minna á tilgang félagsins á óhefðbundnari máta en áður. Vonandi mælist þetta uppátæki félagsins vel fyrir.

Spurningaleikurinn fer fram á morgun, 16. apríl kl. 21.00 eins og fyrr segir. Náðu í HAX appið og kynntu þér málið!