Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvaedi Midhusaskogi Kort

Almennar fréttir - 09.06.2020

Tjaldsvæði VR – opnað fyrir bókanir þann 10. júní

Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi opnar föstudaginn 12. júní. Sú nýbreytni verður á tjaldsvæðinu í ár að félagsmenn þurfa að bóka sér stæði en það er gert inni á Mínum síðum. Þar má sjá kort af svæðinu og er hvert og eitt stæði tölusett.

Opnað verður fyrir bókanir á tjaldsvæðinu, miðvikudaginn 10. júní kl. 9.00.

Farið er inn á Orlofsvefinn í flipann „Laus tímabil“ og þar er farið í fellilistann „Flokkur“ og neðst í honum er að finna „Tjaldsvæði Miðhúsaskógi“. 

Verð fyrir nótt með rafmagni er 2000 kr. en verð fyrir nótt án rafmagns er 1500 kr.

  • Athugið að gestir mega ekki koma inn á tjaldsvæðið, séu þeir í sóttkví, í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku), hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift eða eru með einkenni.
  • Aldurstakmark til að bóka tjaldstæði er 20 ár, miðað er við árið sem félagsmaður verður 21 árs.
  • Tjaldsvæðið er aðeins ætlað VR félögum og fjölskyldum þeirra en félagsmenn geta boðið gesti/gestum til að dvelja með sér á tjaldsvæðinu, þó aldrei meira en sem samsvarar einu tjaldstæði. Heimilt er að hafa gæludýr á tjaldsvæðinu.
  • Hámarksdvöl á tjaldsvæðinu eru tíu dagar.

VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíla af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki 30.000 kr. fyrir hvert orlofstímabil. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun. Umsókn um niðurgreiðslu á ferðavagni er að finna undir „Meira“ á Mínum síðum.