Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
NewtonsCradle_Trun_wide.jpg

Almennar fréttir - 02.03.2020

Varst þú að missa vinnuna? Fundur fyrir félagsmenn

VR býður félagsmönnum sínum, sem nýlega hafa verið sagt upp störfum af hálfu atvinnurekanda, á fyrirlestur þriðjudaginn 10. mars kl. 16.00-17.30 í sal VR á 0. hæð í Húsi verslunarinnar.

Í upphafi fyrirlesturs fer sérfræðingur af kjaramálasviði yfir réttarstöðu einstaklings gagnvart starfslokum af þessu tagi, umsóknarferlið gagnvart atvinnuleysissjóði og nokkur gagnleg atriði við atvinnuleit.

Því næst mun Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur, fjalla um hvernig við getum unnið með og breytt viðhorfum okkar og venjum til að ná fram okkar besta þegar á reynir. Lögð verður áhersla á gagnlegar aðferðir til að takast á við breytingar við krefjandi aðstæður. Fræðslan verður í formi fyrirlesturs og umræðna í bland.

Jóhann Ingi Gunnarsson hefur áratugareynslu af klínískri vinnu með einstaklinga auk þess sem hann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir fyrirtæki og stofnanir bæði hér heima og erlendis. Einnig má nefna að hann hefur lengi starfað á vettvangi íþrótta, t.d. sem landsliðsþjálfari auk þess að vera andlegur styrktarþjálfari margra af okkar fremstu íþróttamönnum.

Smelltu hér til að skrá þig á fyrirlesturinn.