Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Fanar Kringlan 2

Almennar fréttir - 24.08.2022

Vilt þú sitja ASÍ þing fyrir VR?

VR óskar eftir frambjóðendum meðal félagsfólks á framboðslista stjórnar og trúnaðarráðs félagsins. Ákveðið hefur verið að viðhafa listakosningu með allsherjaratkvæðagreiðslu um þing- fulltrúa VR á þing Alþýðusambands Íslands dagana 10.–12. október næstkomandi.

Ef þú vilt gefa kost á þér á listann sem þingfulltrúi VR á þinginu vinsamlega sendu tölvupóst á anna@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 1. september næstkomandi með upplýsingum um nafn, kennitölu og starfssvið.

Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki hægt að lofa að öll sem bjóða sig fram muni hljóta sæti á listanum. Einnig verður stillt upp lista varaþingfulltrúa sem oftar en ekki þarf að grípa til þar sem algengt er að fólk heltist úr lestinni er nær dregur.