Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
                    
                Almennar fréttir - 30.10.2024
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum orlofshúsum eða íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsfólk sitt. Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2024. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir.
- Ástand eignar og staðsetning.
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár.
- Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni.
 
                 
                                                