Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
1.mai-fanar2

Launakönnun - 13.02.2015

Launaleiðrétting í eins árs samningi

VR kynnti Samtökum atvinnulífsins launkröfur sínar í komandi kjarasamningum á fundi í dag, þann 13. febrúar. Kröfurnar voru samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta á fjölmennum fundi trúnaðarráðs félagsins í gærkvöldi. VR leggur áherslu á að leiðrétta laun félagsmanna miðað við þær launahækkanir sem orðið hafa á vinnumarkaði síðustu misseri og metur kostnaðarauka atvinnulífsins innan þeirra marka sem fyrirtækin þola. 

Meginatriði í launakröfum VR eru: 

 

  1. Að samið verði til eins árs þar sem meðalhækkun launa er kr. 24.000, m.v. fullt starf. 
  2. Við launahækkanir verði stuðst við launaþróunartryggingu að hámarki kr. 50.000 m.v. fullt starf. Frá þeirri upphæð dragast launahækkanir á tímabilinu 1. janúar 2014 til 28. febrúar 2015, þ.e. 2,8% sem samið var um í síðustu kjarasamningum og allar hækkanir umfram það. 
  3. Að lágmarkslaun fyrir fullt starf verði kr. 254 þúsund.  
  4. Kostnaðarauki atvinnulífsins vegna launakrafna VR er kr. 6,9 milljarðar eða 5,35% að mati félagsins.


Samningur til skemmri tíma 

Kröfur VR voru lagðar fyrir fund trúnaðarráðs félagsins í gærkvöldi þar sem miklar umræður fóru fram. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, fór yfir kröfugerðina og gerði gildistíma nýs samnings m.a. að umræðuefni. Óvissa með afnám gjaldeyrishafta og vantraust milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda gera að engu möguleika á langtímasamningi, sagði hún, hér er verið að gera kröfu um leiðréttingu á kjörum félagsmanna vegna breyttra aðstæðna á vinnumarkaði. 

Ólafía sagði félagið hafa það að leiðarljósi í kjarasamningaviðræðum að auka ráðstöfunartekjur félagsmanna og að kröfugerð VR byggi á óskum félagsmanna sjálfra eins þær birtast í niðurstöðum kannanna. Fundarmenn samþykktu nær einróma umboð til formannsins til að leggja þessar kröfur fyrir viðsemjendur félagsins.

undefined

Launaþróunartrygging 

Hækkanir í kjarasamningum opinberra starfsmanna síðustu misseri liggja til grundvallar kröfum VR um launabreytingar. Launaþróunartrygging, sem einnig er kölluð baksýnisspegill, er að mati VR best til þess fallin að leiðrétta á sanngjarnan hátt laun félagsmanna m.t.t þessara hækkana. 

Kröfugerð VR leggur áherslu á að hækka laun þeirra sem lægstu launin hafa sem og millitekjuhópsins. Innan VR er millitekjuhópurinn stærstur, mynd 1 sýnir dreifingu launa félagsmanna sem hafa laun yfir lágmarkslaunum. Flestir eru í tekjuhópunum 370 – 410 þúsund krónur á mánuði (sjá mynd #1, smelltu á myndina til að sjá stærra eintak). 

VR gerir kröfu um launaþróunartryggingu að upphæð kr. 50 þúsund fyrir þá starfsmenn sem voru í starfi hjá sama launagreiðanda þann 31. desember 2013. Frá þessari upphæð dragast allar launahækkanir á tímabilinu frá 1. janúar 2014 til 28. febrúar 2015. 

Grunnhækkunin, kr. 50.000, miðar þannig við laun félagsmannsins áður en núgildandi kjarasamningur tók gildi og dragast launahækkanir hans á gildistíma núverandi samnings frá. Það þýðir að 2,8% almenn launahækkun í upphafi árs 2014 og allar hækkanir umfram það dragast frá þessari grunnhækkun. 

undefined

Hér er um að ræða leiðréttingu á síðasta kjarasamningi VR í ljósi þróunarinnar á vinnumarkaði frá því hann var gerður. Meðalhækkun félagsmanna samkvæmt þessum kröfum er um kr. 24 þúsund miðað við þau laun sem þeir hafa í dag, þeir sem hafa lægri laun fá hærri krónutöluhækkun en þeir sem hafa hærri laun. Á mynd 2 má sjá hvernig launaþróunartrygging er m.v. mismunandi laun,  smelltu á myndina til að sjá stærra eintak. 

Dæmi um launaþróunartryggingu (miðað er við laun fyrir fullt starf): 

 

    • Félagsmaður með lágmarkslaun í lok desember 2013 fékk kr. 204.000 í laun. Þann 1. janúar 2014 hækkuðu laun hans í kr. 214.000, skv. kjarasamningum. Launaþróunartrygging VR myndi færa þessum félagsmanni kr. 40.000 hækkun og yrðu laun hans því kr. 254.000 á mánuði. 
    •  Félagsmaður sem hafði kr. 350.000 í lok desember 2013 hækkaði í kr. 359.800 þann 1. janúar 2014 eða um 2,8%. Launaþróunartrygging VR myndi færa þessum félagsmanni kr. 40.200 hækkun og yrðu laun hans kr. 400.000 á mánuði. 
    • Félagsmaður sem hafði kr. 700.000 í lok desember 2013 hækkaði í kr. 719.600 þann 1. janúar 2014 eða um 2,8%. Launaþróunartrygging VR myndi færa þessum félagsmanni kr. 30.400 og yrðu laun hans kr. 750.000 á mánuði. 

 

Við útreikning á launaþróunartryggingu skal miða við heildarlaun, þ.e. föst og reglubundin viku- eða mánaðarlaun að viðbættum föstum álags- eða aukagreiðslum hverju nafni sem þær nefnast. 

Grunnupphæð þeirra sem hófu störf á tímabilinu 2. janúar til 31. desember 2014 er kr. 30.000, að frádregnum launahækkunum á tímabilinu frá 2. janúar 2014 til 28. febrúar 2015. 

Kostnaður fyrirtækja er 5,35% 

Samkvæmt útreikningum VR nemur kostnaðaraukning atvinnulífsins vegna launahækkunar félagsmanna VR 6,9 milljörðum króna eða sem nemur 5,35%. Þá er ekki búið að taka tillit til þess að launahækkun leiðir til aukinnar einkaneyslu sem aftur skilar sér í tekjuaukningu fyrirtækja. Um 75-80% af launum fara í neyslu að meðaltali og má því gera ráð fyrir því að um 4 milljarðar af launahækkuninni, að teknu tilliti til skatta, skili sér aftur til atvinnulífsins. Það er vel innan þess ramma sem ásættanlegt er að mati VR. 

 VR hefur tekið saman áhrif þessara krafna á 23 af stærstu launagreiðendum VR félaga en hjá þessum fyrirtækjum starfa um 21% félagsmanna VR. Heildarhagnaður þessara fyrirtækja á árinu 2013 var 21 milljarður króna. Kröfur VR hafa í för með sér að hagnaður fyrirtækjanna dregst saman um 3,5 milljarða króna og þurfa tekjur þeirra að aukast um 0,9% til 2,5% til að halda sama hagnaði.