Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Skrifstofa_01.jpg

Launakönnun - 18.02.2015

Tékkaðu á laununum þínum

Vissir þú að á VR vefnum getur þú skoðað hvernig launin þín hafa þróast síðustu misseri í samanburði við aðra? Þú getur líka farið yfir launaseðilinn þinn og farið yfir útreikninginn eða skoðað hver launin eru samkvæmt nýjustu launakönnun VR.

Á vef VR eru nokkar reiknivélar sem gott er að geta gripið til.

Launaseðilll – hér getur þú reiknað út launin þín, séð hversu mikið þú átt að fá útborgað, hve mikið fer í skatta o.s.frv. 

Launaþróun – hér getur þú séð yfirlit yfir þróun launa þinna yfir valið tímabil í samanburði við aðra, bæði innan VR og á vinnumarkaði. 

Launakönnun VR – hér getur þú séð hver launin eru samkvæmt launakönnun VR 2014, bæði fyrir starfsheitin ein og sér og einnig eftir atvinnugreinum.