Kosningar 2026
Kosningum til stjórnar VR kjörtímabilið 2026-2027, sem stóðu frá 5. mars til kl. 12:00 á hádegi þann 12. mars 2026 er nú lokið. Atkvæði greiddu 2739. Á kjörskrá voru alls 40.785 VR félagar. Kosningaþátttaka var því 6,7 %.
Niðurstöður kosninganna eru sem hér segir:
Júlíana Einarsdóttir
Jónas Yngvi Ásgrímsson
Sigríður Lovísa Jónsdóttir
Gabríel Benjamin
Birgitta Ragnarsdóttir
Bjarni Þór Sigurðsson
Paula A. Sánchez
Sjö stjórnarmenn – til eins árs skv. fléttulista eins og kveðið er á um í 20. gr. laga VR
Þessir aðilar eru því réttkjörnir skv. 20. gr. laga félagsins og hefst kjörtímabil þeirra á aðalfundi fyrir árið 2026 sem haldinn verður 25. mars.
Sjá hér heildarniðurstöður í kosningunum.
Hvernig á að kjósa?
Til að kjósa, smelltu á hnappinn að ofan og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum. Þá opnast atkvæðaseðill í nýjum vafra og upplýsingar um hvernig þú átt að bera þig að við að greiða atkvæði. Ef þú ert ekki með rafræn skilríki getur þú sótt um á audkenni.is eða í viðskiptabankanum þínum.
Rétt er að benda á að úthlutun sæta í stjórn á grundvelli niðurstöðu kosninganna fer fram með svokallaðri fléttuaðferð, þ.e. karlar og konur raðast til skiptis í sætin. Sjá nánar 20. grein laga VR.
Hverjir hafa atkvæðisrétt?
Atkvæðisrétt í kosningunum hafa allir fullgildir VR félagar. Á kjörskrá er einnig eldra félagsfólk sem fær greiddan ellilífeyri og hefur verið í félaginu í a.m.k. 5 ár samfellt fyrir töku eftirlauna.
Upplýsingar til atkvæðisbærra VR félaga
Allt atkvæðisbært félagsfólk fær sendar upplýsingar í tölvupósti um hvernig atkvæðagreiðslan fer fram. Upplýsingarnar verða einnig aðgengilegar hér á vef VR og auglýsingar verða birtar á vefmiðlum og samfélagsmiðlum VR.
Þau sem ekki hafa aðgang að atkvæðaseðli en telja sig eiga rétt á þátttöku í atkvæðagreiðslunni geta sent erindi til kjörstjórnar VR á netfangið kjorstjorn@vr.is eða í pósti til Kjörstjórnar VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir lok kjörfundar en kjörfundi lýkur kl. 12:00 á hádegi 12. mars. Kjörstjórn beinir því til félagsfólks sem óskar eftir því að kæra sig inn á kjörskrá að gera það eigi síðar en 2 klst. fyrir lok kjörfundar.