Vefspjall
Hleður upp...

Birgitta Ragnarsdóttir

Fæðingardagur og -ár
22. apríl 1989

Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni

Vinnustaður, starf og menntun
Ég er tollmiðlari hjá Icetransport ehf. og hef starfað þar frá árinu 2018. Ég lauk námi frá háskólabrú Keilis af viðskipta- og hagfræðibraut árið 2017. Einnig hef ég lokið námi við Skrifstofuskólann og undirbúningsnámi fyrir viðurkennda bókarann frá Promennt ásamt því að vera menntuð sem tollmiðlari.

Netfang: birgittara@gmail.com
Facebook: birgittar
Instagram: birgittara

Smelltu hér til að horfa á kynningarmyndband frambjóðanda


Reynsla af félagsstörfum 

Síðastliðið ár hef ég setið í stjórn VR, fyrst sem varamaður en nú sem aðalmaður. Ég sit í fjölmörgum nefndum innan VR og er meðal annars formaður framtíðarnefndar. Á síðastliðnu þingi Landssambands íslenzkra verzlunarmanna var ég kosin í stjórn sambandsins til tveggja ára.

Frá 2015 hef ég átt sæti í trúnaðarráði VR. Ég hef verið í stjórn ASÍ-ung, bæði sem stjórnarmaður og varaformaður. Þá tók ég þátt í stofnun Ungliðaráðs VR og hef setið í ýmsum nefndum innan ASÍ. Ég sit jafnframt í jafnréttisnefnd ASÍ fyrir hönd LÍV.

Ég er formaður foreldrafélags leikskólanna í Hveragerði og sit í foreldraráði leikskólans Óskalands.


Helstu áherslur

Ég gef kost á mér til áframhaldandi starfa í stjórn VR því ég vil standa vörð um hagsmuni félagsfólks og skila raunverulegum árangri. Eftir áratug í trúnaðarráði og setu í stjórn þekki ég daglegan veruleika á vinnustöðum og þau áhrif sem ákvarðanir félagsins hafa á líf fólks.
Ég hef áður sagt að ég endurspegli hinn almenna félagsmann VR – í meðalaldri og með laun í kringum meðallaun. 

Mín áhersla er á að kjarasamningar tryggi raunverulegan kaupmátt, að laun dugi fyrir húsnæði og framfærslu. VR á að vera öflugt og sýnilegt afl í lífskjara- og húsnæðismálum, verja réttindi á breyttum vinnumarkaði og styðja við sí- og endurmenntun.

Við eigum ekki aðeins að bregðast við breytingum heldur móta framtíðina með félagsfólkið í forgrunni.