Fæðingardagur og -ár
4. september 1958
Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni
Vinnustaður, starf og menntun
Ég starfa hjá Birtíngi útgáfufélagi sem sölu- og markaðsstjóri. Jafnframt því starfa ég sem leiðsögumaður yfir sumartímann. Ég lærði kvikmyndagerð í Frakklandi og er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Netfang: bjarnithor@me.com
Facebook: https://www.facebook.com/bjarni.thor.sigurdsson
Vefsíða: bjarnithor.is
Reynsla af félagsstörfum
Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hef starfað við verslunarstörf, í fjölmiðlum, við markaðssetningu og ráðgjöf. Ég starfaði hjá 365 og Sýn í 15 ár, lengst af sem verkefnastjóri hjá Vísi. Þá var ég sérfræðingur hjá ASÍ í húsnæðismálum, formaður húsnæðisnefndar VR og stjórnarmaður í Bjargi og Blæ. Ég hef verið félagi í VR í tæp 30 ár og gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Ég hef setið í stjórn VR frá 2012. Ég var varaformaður VR 2013–2017, í miðstjórn ASÍ og er núna í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Helstu áherslur
Ég hef verið í forystu í húsnæðismálum innan verkalýðshreyfingarinnar fyrir VR og ASÍ og tekið virkan þátt í uppbyggingu Bjargs og Blævar. Ég tel fjölbreytt húsnæðiskerfi lykilinn að heilbrigðum húsnæðismarkaði. Nú er stefnt að uppbyggingu nýs hverfis í Úlfársárdal með aðkomu verkalýðshreyfingarinnar og ég vil fylgja því verkefni eftir þar til það verður að veruleika. Reynslan sýnir að verkalýðshreyfingin getur haft afgerandi áhrif.
Ævilíkur aukast og fólk heldur heilsu lengur. Fólk 50 ára og eldra nýtur þó ekki alltaf sömu tækifæra og aðrir. Aldursfordómar eru raunveruleg áskorun sem útiloka dýrmæta reynslu af vinnumarkaði. Ég vil að VR verði leiðandi í baráttunni gegn aldursfordómum.
Sí- og endurmenntun er lykillinn að breyttu starfsumhverfi. Sjálfvirknivæðing og gervigreind kallar á nýja hæfni. Við þurfum að tryggja fjölbreytt námsúrræði og undirbúa félagsmenn fyrir störf framtíðarinnar.
Öryggi verslunarfólks í daglegum störfum verður ávallt að vera í forgangi, þar á meðal vernd gegn ofbeldi og áreitni.
Ég vil standa vörð um sjúkrasjóð VR. Félagsfólk verður að geta reitt sig á stuðning við heilsubrest og skerta starfsorku. Sjúkrasjóðurinn er hornsteinn stéttarfélagsins.
Ég býð fram krafta mína, þekkingu og áratuga reynslu í þágu félagsins og óska eftir stuðningi í komandi kosningum.