Fæðingardagur og -ár
19. febrúar 1987
Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni
Vinnustaður, starf og menntun
Ég vinn sem neyðarvörður hjá Neyðarlínunni þar sem ég aðstoða fólk í neyð og sendi bjargir til þess. Áður starfaði ég sem kjaramálafulltrúi hjá stéttarfélaginu Eflingu. Þá var ég blaðamaður hjá Stundinni og The Reykjavík Grapevine þar sem ég fjallaði ítarlega um verkalýðsmál og réttindabrot á vinnumarkaði. Ég er menntaður í heimspeki frá Háskóla Íslands og Edinborgarháskóla, með sérstaka áherslu á siðfræði og stjórnmálaheimspeki.
Netfang: tgabrielbenjamin@gmail.com
Facebook: https://www.facebook.com/tgabrielb
Reynsla af félagsstörfum
Á síðustu þremur árum hef ég öðlast dýrmæta reynslu. Fyrst var ég varamaður í stjórn VR og síðar í stjórn. Ég hef komið ýmsu í verk, bæði innan stjórnar og í fjölbreyttum nefndarstörfum. Frá 2023-2025 var ég formaður jafnréttis- og mannréttindanefndar VR og á þeim tíma fórum við af stað með átaksverkefni um inngildingu erlends félagsfólks á vinnustöðum. Sú herferð felur í sér auglýsingar á samfélagsmiðlum, í sjónvarpi og jólaauglýsingu. Árið 2025 varð ég formaður kjaramálanefndar en við höfum verið að fara yfir árangur frá síðustu kjarasamningum og undirbúa félagið fyrir næstu kjarasamninga. Ég hef setið í miðstjórn ASÍ frá 2024 fyrir hönd Landssambands ísl. verzlunarmanna og er formaður nýstofnaðrar framtíðarnefndar ASÍ.
Helstu áherslur
Óljóst er hvort kjarasamningar haldi út árið vegna forsenduákvæða um verðbólgu. Ef samningar losna er ég reiðubúinn til þess að hliðra til vinnu til að einbeita mér að samninganefnd félagsins. Mikilvægt er að vinna að samningum sem virka fyrir VR félaga. Mér þykir aðkallandi að samningar stuðli að bættum lífsgæðum á tímum verðbólgu og alltof hárra vaxta og hugað verði að betra jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs.
Hvort sem samningar losna í haust eða ekki munum við mæta vel undirbúin til leiks. Verkefnið núna er að standa vörð um og bæta kaupmátt okkar fólks. VR hefur verið fremst meðal stéttarfélaga í hagsmunagæslu hins almenna félagsmanns og nægar verða áskoranirnar á komandi ári. Hvort sem verkefnið verður að etja kappi við fyrirtæki sem hagnýta sér verðbólgu, bregðast við áhrifum tæknibreytinga á vinnumarkað eða að verja stöðu fjölskyldufólks og erlends félagsfólks þá er ég reiðubúinn í þá vinnu.