Fæðingardagur og -ár
23. desember 1974
Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni
Vinnustaður, starf og menntun
Kerfisstjóri hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Menntun: MBA-gráða frá HÍ (2011-2013), BSc í viðskiptafræði frá HR með vinnu (2007-2011), tölvufræði/tæknibraut IR (1993-1997), FIVB Coaching Level 1 (1993).
Netfang: johann787@hotmail.com og johann@rml.is
Facebook: https://facebook.com/johannmarofficial og https://facebook.com/johannmar
LinkedIn: johann-sigurbjornsson
Reynsla af félagsstörfum
Fyrri störf: Verkefnastjóri í veflausnum hjá Fiskistofu (1999-2006), framkvæmdastjóri og eigandi NF (1999-2002), kerfisstjóri hjá varnarliðinu (1997-1999), þjálfari yngri flokka í blaki HK (1991-1997).
Reynsla af félags- og stjórnunarstörfum: Formaður samtaka leigjenda (2013-2018), í Trúnaðarráði VR (2016-2026), stjórnarmaður í Lífeyrissjóði bænda (2023-2026), stjórnarmaður í Vinum Kópavogs (2021-2026), stjórnarformaður og eigandi NF ehf. (1999-2002), í miðstjórn Iðnnemasambands Íslands (1993-1995), í miðstjórn nemendafélags IR (1993-1997), formaður blakdeildar HK (1994-1997), stjórnarformaður í Vinnulyftum ehf. (1996-1999) og formaður Keiludeildar HK (1994-1997).
Helstu áherslur
Húsnæðismál eru mér efst í huga þegar kemur að áherslum vegna framboðs til stjórnar VR.
Húsnæðiskostnaður er stærsti útgjaldaliður heimilanna og mikilvægt að verkalýðshreyfingin standi vörð um að sá kostnaður hækki ekki óeðlilega mikið fyrir hinn almenna launamann.
Í allt of langan tíma hefur verkalýðshreyfingin treyst á að stjórnvöld móti húsnæðisstefnu til framtíðar — ein og óstudd, án aðkomu eða afskipta hreyfingarinnar. Sú stefna hefur þó leitt til þess að fasteignaverð hefur hækkað mun hraðar en laun. Það gerir launafólki erfitt fyrir að kaupa sína fyrstu íbúð eða stækka við sig þegar þörf krefur.
Ég vil beita mér fyrir því að stýrivextir hafi minna vægi þegar kemur að húsnæðislánum. Þá er mikilvægt að stjórnvöld og Seðlabankinn hætti að hamla eftirspurn með því að gera fólki erfiðara fyrir að kaupa húsnæði. Þess í stað þarf að hafa raunveruleg áhrif á framboðshliðina og gera fjárfestingu í íbúðarhúsnæði óaðlaðandi fyrir braskara. Við viljum braskið burt af húsnæðismarkaði.
Það má ekki hamla aðgengi fólks að fjármögnun eigin húsnæðis eins og stefnt gæti í með afnámi verðtryggingar.
Með setu minni í trúnaðarráði og húsnæðisnefnd VR hef ég fengið tækifæri til að koma að mótun þeirrar stefnu sem hreyfingin hefur unnið að í samstarfi við stjórnvöld en betur má ef duga skal.
Ég vonast eftir að fá atkvæðið þitt í kosningum til stjórnar VR. Stefna mín er að beita mér fyrir því að hér á Íslandi verði til heilbrigður, sanngjarn og umfram allt viðráðanlegur húsnæðismarkaður. Til þess þarft þú að nýta kosningaréttinn og kjósa rétt.