Fæðingardagur og -ár
17. febrúar 1963
Félagssvæði
Suðurland
Vinnustaður, starf og menntun
Abbey Road ehf., ráðgafi/bókari, viðskiptafræðingur
Netfang: jonasy@simnet.is
Facebook: https://www.facebook.com/jyasgrimsson/ og https://www.facebook.com/jonas.y.asgrimsson/
Reynsla af félagsstörfum
Ég hef sem stjórnarmaður VR unnið í ýmsum nefndum. Þær eru helstar starfsmenntanefnd, kjaramálanefnd og húsnæðisnefnd. Starfsmenntamál eru mér mjög hugleikin en ég vil sjá möguleika fólks til áframhaldandi menntunar verða að veruleika. Þarna skiptir máli að fá í kjarasamninga aukna heimild starfsfólks til að geta sótt sér viðbótarmenntun á vinnutíma.
Húsnæðismál ungs fólks eru mér einnig ofarlega í huga og þar hef ég komið að málum í húsnæðisnefnd. Auk þess er ég stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna og þá er ég í stjórn HMS. Sem stjórnarmaður búsettur utan höfuðborgarsvæðisins hef ég einnig verið óþreyttur við að benda á aðstöðumun félagsfólks sem er búsett á landsbyggðinni hvað varðar ýmsa þjónustu.
Að öðrum félagsstörfum má nefna að ég er félagi í Lions og Oddfellow.
Helstu áherslur
Meðal þess sem ég legg líka áherslu á eru bætt kjör þeirra sem hafa lægstu launin. Styttri vinnuvika og 30 daga orlof til jafns við opinbera markaðinn er réttlætismál. Áframhaldandi þróun starfsnáms er líka nauðsynlegur hluti af kjaramálum framtíðarinnar, sérstaklega ef tekið er tillit til fjórðu iðnbyltingarinnar. Mesta kjarabótin er þó að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ástæða verðbólgunnar er ekki launahækkanir kjarasamninga heldur miklu frekar sú græðgisvæðing sem birtist í hagnaðartölum stórfyrirtækja. Ekki er lengur hægt að krefjast þess að launafólk beri eitt byrðarnar heldur verða fjármagnseigendur líka að koma að því.
Undanfarin ár hafa verið lærdómsrík. Að starfa í stjórn stéttarfélags er mikil vinna og gefandi. Ákvarðanir sem teknar eru í stjórninni koma til með að hafa áhrif á líf margra. Því þurfum við sem þar störfum að vinna af ábyrgð og vanda verk okkar.
Ég óska eftir því að þú, VR félagi góður, greiðir mér atkvæðið þitt og leyfir mér þannig að vinna áfram fyrir þig.