Vefspjall
Hleður upp...

Júlíana Einarsdóttir

Fæðingardagur og -ár
26. október 1986

Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni

Vinnustaður, starf og menntun
Ég starfa sem mannauðsstjóri hjá Aðföngum. Ég lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík, BA-gráðu í félagsfræði og Msc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði. Auk þess er ég með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum

Netfang: julianaein@gmail.com
Facebook: https://www.facebook.com/juliana.einarsdottir.9/ 


Reynsla af félagsstörfum 

Ég hef átta ára reynslu af mannauðsmálum. Ég var í faghópi um heilsueflandi vinnuumhverfi á vegum Stjórnvísi þar sem áhersla var lögð á fræðslu um heilsueflingu á vinnustöðum. 

Ég er félagslynd og hef gegnt stöðu formanns starfsmannafélags, bæði á núverandi og öðrum vinnustöðum. Þar hef ég séð um að skipuleggja viðburði og stuðla að bættri vinnustaðamenningu. 

Ég hef átt í góðu samstarfi við VR í gegnum árin vegna starfa minna, meðal annars þegar kemur að kjaramálum. 


Helstu áherslur

Ég býð mig fram í stjórn VR til að leggja mitt af mörkum við að bæta kjör VR félaga og taka virkan þátt í mikilvægu starfi félagsins.   

Í mínum störfum sem mannauðsstjóri sé ég svart á hvítu hversu stórt hlutverk verkalýðsfélög spila á vinnumarkaði. Það er þó hægt að gera betur. Endurskoða má styrkjakerfið og ég tel sjálf að fæðingarstyrkir ættu að vera sjálfsagður hluti kerfisins. Þá tel ég mikilvægt að VR styðji betur við geðheilbrigði félagsfólks, t.d. með styrkjum vegna sálfræðiþjónustu. Þannig mætti betur fyrirbyggja brottfall fólks af vinnumarkaði. 

Standa þarf vörð um veikindaréttinn sem grundvallarrétt félagsfólks. Á sama tíma er nauðsynlegt að hlusta á áhyggjur atvinnurekenda og stuðla að því að kerfið byggist á sanngirni og gagnkvæmu trausti og að það sé sjálfbært. 

Að lokum legg ég áherslu á að virkja félagsfólk betur og auka þátttöku þess í kosningum og starfi félagsins.