Fæðingardagur og -ár
27. febrúar 1968
Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni
Vinnustaður, starf og menntun
Ég hef starfað hjá Brimborg í 35 ár, fyrst sem tollskýrslufulltrúi, síðan gjaldkeri, aðstoðarmaður forstjóra, söluráðgjafi nýrra bíla, ráðningar- og þjálfunarstjóri ásamt því að sinna launavinnslu, vera gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar og er nú ráðgjafi Mazda, Opel, Peugeot og Citroën. Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1989. Þá lauk ég diplómagráðu í mannauðsstjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2010 ásamt diplómagráðu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
Netfang: lovisa@brimborg.is
Facebook: Sigríður Lovísa í stjórn VR
Reynsla af félagsstörfum
Ég hef alltaf verið mjög virk í félagsstörfum, hef m.a. verið í bekkjaráði í Borgarskóla frá 2006-2009. Þá hef ég verið í stjórn foreldrafélags Árbæjarskóla frá 2009-2013, fyrst sem meðstjórnandi og síðar formaður. Síðastliðin 10 ár hef ég setið sem aðalmaður í stjórn VR og undanfarin tvö ár hef ég verið í eftirfarandi nefndum á vegum VR: launanefnd, jafnréttisnefnd, framkvæmdastjórn vinnudeilusjóðs, uppstillingarnefnd um val á stjórnarfólki í LIVE og varamaður í framkvæmdastjórn Orlofssjóðs og jafnréttis- og mannréttindanefnd.
Ég var varamaður í miðstjórn ASÍ 2018-2020. Ég hef mikla reynslu af kjaramálum vegna samskipta minna við kjaramálafulltrúa VR og fleiri stéttarfélaga í tengslum við starf mitt um 18 ára skeið. Ég tel mjög mikilvægt að hafa fólk í stjórn VR með mikla reynslu af mannauðs-, launa- og kjaramálum eins og ég tel mig hafa. Ég hef mikinn áhuga á að nýta þessa reynslu mína áfram í stjórn VR ásamt 10 ára reynslu af stjórnarsetu í VR.
Helstu áherslur
- Aukinn kaupmáttur - standa þarf vörð um að launahækkanir fari ekki beint út í verðlagið.
- Jafnræði í launahækkunum - með því að gæta þess að enginn hópur sitji eftir. VR er með breiðan hóp félagsfólks. Vinna þarf jafnt fyrir allt félagsfólk VR óháð launum, aldri, kyni og þjóðerni.
- Halda áfram baráttunni í húsnæðismálum, auðvelda fyrstu kaup og gera leigumarkaðinn aðgengilegri.
- Aukin tækifæri til endurmenntunar, t.d. að á ákveðnu tímabili ávinnist tiltekinn réttur til námsleyfis á reglubundnum launum.
- Sveigjanleg starfslok - með því að gefa félagsfólki sem komið er á aldur svigrúm til að minnka starfshlutfall sitt áður en það lýkur störfum.
- VR sem landsfélag vegna þess að það veitir meira jafnræði og er ákveðin hagræðing.
Að lokum er mikilvægt að hlusta á óskir félagsfólks til að gera gott félag betra. Ég er tilbúin til að halda áfram að vinna í krefjandi verkefnum fyrir þig.
Takk fyrir lesturinn, þitt atkvæði skiptir máli.