Vefspjall VR
28. okt.
20:00 Salur VR á 0. hæð í Húsi verslunarinnar og í fjarfundi á Teams
VR Deildleidsagnar BANNER

Fundir

Aðalfundur deildar leiðsögufólks 2025

Aðalfundur deildar leiðsögufólks í VR verður haldinn þriðjudaginn 28. október 2025 kl. 20:00 í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn. 

Félagsfólk sem ætlar að sækja fundinn verður að skrá sig fyrirfram á vef VR fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi og skrá sig annað hvort á stað- eða fjarfund. 

Allt fullgilt félagsfólk deildar leiðsögufólks í VR getur sótt fundinn. Fullgilt félagsfólk er það sem greitt hefur a.m.k. 11.365 kr. alls í félagsgjöld á sl. 12 mánuðum,  að meðtöldum greiðslum til Leiðsagnar – félags leiðsögumanna, ásamt því að hafa greitt félagsgjöld til VR fyrir a.m.k. einn mánuð frá júní – ágúst ´25. Yfirlit yfir greidd félagsgjöld er hægt að sjá á Mínum síðum á vr.is. Skráning í deild leiðsögufólks í VR fer fram á Mínum síðum á vr.is undir umsóknir.

Túlkun á ensku verður einungis í boði á Teams. Félagsfólk sem þarfnast túlkunar á staðfundi, vinsamlega komið með viðeigandi búnað og heyrnartól. 

Skráðu þig á fundinn hér fyrir ofan.

Kosningar á fundinum verða ýmist með handauppréttingu eða rafrænar og fundargestir auðkenna sig inn á fjarfund með rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Ef félagsfólk lendir í tæknilegum vandræðum er hægt að hafa samband í síma 820 1700 frá kl. 20:00. Við hvetjum fólk til að skrá sig tímanlega á fjarfundinn.