Fundir
Aðalfundur VR 2026
Aðalfundur VR verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 19:30 í salnum Háteig á Hótel Reykjavík Grand. Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn.
Félagsfólk sem ætlar að sækja fundinn verður að skrá sig fyrirfram á vef VR fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi og skrá sig annað hvort á stað- eða fjarfund.
Túlkun á ensku verður einungis í boði á Teams. Félagsfólk sem þarfnast túlkunar á staðfundi, vinsamlega komið með viðeigandi búnað og heyrnartól.
Þau sem eru skráð á fjarfund fá sendan hlekk á fundinn í tölvupósti á fundardegi. Ef upp koma tæknileg vandamál má hafa samband við tæknisíma VR í síma 820 1700.
Allar kosningar á fundinum verða ýmist með handauppréttingu eða rafrænar og fundargestir auðkenna sig inn á fjarfund með rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Ef félagsfólk lendir í tæknilegum vandræðum er hægt að hafa samband í síma 820 1700 frá kl. 19:00. Við hvetjum fólk til að skrá sig tímanlega á fjarfundinn.
Skráning á fundinn er hér fyrir ofan.