Vefspjall
Hleður upp...
Opið á Mínum síðum
Taktu Stöðuna

Fyrirlestrar

Rafrænn fyrirlestur - Taktu stöðuna

Þegar starfsævin er um það bil hálfnuð er tilvalið að staldra við og taka stöðuna.  

Á Mínum síðum getur félagsfólk horft á myndband þar sem sérfræðingur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna fer yfir atriði sem vert er fyrir félagsfólk VR í kringum fimmtugt að velta fyrir sér. Hvað þýðir það að starfsævin sé hálfnuð? Viltu vinna eins lengi og heilsa leyfir eða stefna að því að hætta fyrr – og hvað getur hvor leið þýtt fyrir þig? 

Farið er yfir mismunandi valkosti og þau sjónarmið sem geta skipt máli við framtíðarskipulagið, svo sem hvort meira öryggi eða meiri sveigjanleiki henti betur. Einnig er vakin athygli á því hvort þú sért að nýta þá sparnaðarmöguleika sem standa þér til boða. 

Góður undirbúningur eykur líkurnar á að þú hafir það gott eftir vinnu. 

Lengd: Um 8 mínútur 
Fyrirlesari: Jenný Ýr, sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna 

Smelltu hér til að skrá þig inn á Mínar síður og horfa á myndbandið.