
Námskeið
Rafrænn fyrirlestur fyrir sjálfstætt starfandi leiðsögufólk
Sérfræðingar frá Skattinum halda fyrirlestur um virðisaukaskatt á Teams þriðjudaginn 18. júní kl. 13:00–14:00. Viðburðurinn er sérstaklega sniðinn að þörfum sjálfstætt starfandi leiðsögufólks en öll áhugasöm eru velkomin.
Í fyrirlestrinum verður meðal annars fjallað um hvernig á að skrá sig á virðisaukaskatts- og launagreiðendaskrá, hvernig staðið er að uppgjöri á virðisaukaskatti og staðgreiðslu og önnur sértæk atriði sem snerta ferðaþjónustu, svo sem skatthlutföll virðisaukaskatts og útgáfu reikninga.
Þá verður farið yfir önnur hagnýt atriði sem gagnlegt er fyrir sjálfstætt starfandi leiðsögufólk að hafa í huga.
Glærur frá fyrirlestrinum verða aðgengilegar á vef VR hér.
Skráning á viðburðinn fer fram hér fyrir ofan.