Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Ragnar Thor Ingolfsson - formadur VR.jpg

Almennar fréttir - 25.05.2018

Yfirlýsing frá formanni VR - 25. maí 2018

Í dag, föstudaginn 25. maí 2018, gaf formaður VR Ragnar Þór Ingólfsson frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Yfirlýsing

Vegna yfirlýsingar forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssonar, í dag 25.05 2018 og fréttar Stöðvar 2 þar sem viðtal var tekið við 2. varaforseta ASÍ , Ingibjörgu Ósk Birgisdóttur, sem einnig er stjórnarmaður í VR og annar af tveimur úr stjórn VR sem greiddu atkvæði gegn vantrausti á forseta ASÍ tel ég mig knúinn til að lýsa yfir eftirfarandi:

Þrátt fyrir ofannefnda yfirlýsingu forseta ASÍ stendur samþykkt stjórnar VR óhögguð. Sú yfirlýsing var samþykkt af 11 stjórnarmönnum af 15, en tveir tóku ekki afstöðu til málsins og tveir voru á móti. Mikil samstaða er á meðal þeirra stjórnarmanna VR sem tóku afstöðu með yfirlýsingunni.

Yfirlýsinguna má finna hér.

Forseti ASÍ nýtur því ekki trausts VR til að leiða viðræður við stjórnvöld eða Samtök atvinnulífsins fyrir okkar hönd og mun ekki tala í okkar umboði.

Forseta ASÍ er frjálst að ræða við hvern sem hann vill en það verður ekki gert í umboði eða með stuðningi stjórnar VR.

Einnig vill formaður og mikill meirihluti stjórnar koma á framfæri að engin ólga er innan stjórnar vegna málsins þó óánægju kunni að gæta hjá þeim tveimur sem voru á móti. Það er ekkert óeðlilegt að tekist sé á innan verkalýðshreyfingarinnar og að ekki séu allir sammála í 15 manna stjórn. Stjórnarstarfið hefur gengið vel hingað til og ekki er óeðlilegt að teknar séu ákvarðanir með þeim hætti sem gert var, utan formlegs stjórnarfundar, enda fjölmörg dæmi um slíkt í stórum sem smáum málum innan stjórnar VR gegnum tíðina.

Stjórnarmönnum í VR er frjálst að hafa sínar skoðanir á öllum málum og tjá sig um þau opinberlega en rétt er að halda því til haga og ítreka að mikill meirihluti stjórnar félagsins stendur á bakvið yfirlýsinguna.

Ragnar Þór Ingólfsson