Niðurstöður úr könnun VR um Fyrirtæki ársins 2025 liggja nú fyrir. Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira (sjá nánar um aðferðafræði hér). Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.
Þrjú efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki eru útnefnd Fyrirtæki ársins 2025, að undanskildum fyrirtækjum í hópi stórra fyrirtækja en þau eru fjögur í ár þar sem ekki er munur á einkunn tveggja fyrirtækja í sætum þrjú og fjögur. Eru Fyrirtæki ársins 2025 því tíu í heildina. Eingöngu fyrirtæki sem bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku í könnuninni koma til greina.
Hér má sjá lista í stafrófsröð yfir Fyrirtæki ársins 2025, í hverjum stærðarflokki fyrir sig. VR óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Stór fyrirtæki

APRÓ

NetApp

Límtré Vírnet

Sjóvá
Meðalstór fyrirtæki

Orkan

Hringdu

Reykjafell
Lítil fyrirtæki

Mjúk Iceland

Arango

Hótel Vellir