Vefspjall
Hleður upp...

Nú er könnun VR á Fyrirtæki ársins hafin!

Með þátttöku í könnun VR á vali á Fyrirtæki ársins leggur þú þitt af mörkum í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi.

Könnun VR á Fyrirtæki ársins er hafin. Allt félagsfólk sem starfandi er á vinnumarkaði fær hana senda í tölvupósti. Þá hafa yfir 130 fyrirtæki skráð sig til leiks og boðið öllu starfsfólki, óháð stéttarfélagsaðild, að taka þátt. Þess má geta að þessi fyrirtæki koma því til greina fyrir nafnbæturnar Fyrirtæki ársins 2026 og Fyrirmyndarfyrirtæki. Könnunin stendur til miðnættis þann 8. mars.

Ef þú telur þig hafa rétt á að taka þátt í könnuninni en hefur ekki fengið senda könnun, hafðu samband við okkur í gegnum netfangið vr@vr.is.

Við hvetjum þig til að taka þátt og láta í þér heyra!

Yfir 100 vinningar í boði fyrir þau sem taka þátt!

  • 3 x iPhone 17 Pro
  • 150 YAY gjafabréf, hvert að upphæð 15.000 kr.

Niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins verða kynntar í maí 2026.