Vefspjall
Hleður upp...

Úthlutunarreglur orlofshúsa að vetri

Úthlutun orlofshúsa VR fyrir veturinn 2026 - 2027 fer svona fram: 

  • VR félagi fer á Mínar síður og sækir um þrjá valkosti sem hann raðar í fyrsta, annað og þriðja sæti eftir því hvað hann myndi helst vilja. 
  • Hámarksleiga að vetri eru 12 nætur fyrir hvern félaga.
  • Úthlutunarkerfi dregur af handahófi út félagsfólk sem fær sendan tölvupóst að úthlutun lokinni.
  • Séu tímabil laus eftir að úthlutun lýkur gildir fyrst koma fyrst fá. 
  • Húsin eru leigð í viku í senn. 
  • Fyrir utan þessi tímabil, er hægt að leigja húsin til skemmri tíma, án úthlutunar.

Mikilvægar dagsetningar fyrir vetrarúthlutun:

  • Opnað verður fyrir umsóknir þann 5. mars.
  • Lokað fyrir umsóknir þann 15. mars.
  • Það skiptir ekki máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út.
  • 16. mars er dregið af handahófi í gegnum úthlutunarkerfið.
  • Þau sem fá úthlutað orlofshúsi fá sendan tölvupóst.
  • Félagsfólk hefur til 22. mars til að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður.
  • Þann 26. mars  kl. 10:00 verður opnað á umsóknir orlofshúsa allt vetrartímabilið sem er frá 19. ágúst 2026 til 9. júní 2027. Þá gildir reglan „fyrst koma, fyrst fá“. Lágmarksleiga er þá tveir dagar og helgar eru leigðar frá föstudegi til mánudags.

Orlofshúsunum verður úthlutað á þessum tímum:

  • Haust- og vetrarfrí (21. október - 28. október 2026 og 17. - 24. febrúar 2027) 
  • Jól 2026
  • Áramót 2026 - 2027
  • Páskar 2027
  • Skíðatímabil á Akureyri frá 1. febrúar til 1. apríl 2027 (orlofshús í Hálöndum og Skipagötu)

Allt fullgilt félagsfólk getur sótt um að fá úthlutað orlofshúsi á þessum tímum, og skiptir ekki máli þó viðkomandi hafi leigt orlofshús veturna áður eða ekki.

Sjá ítarlegri reglur og skilmála hér.

Smelltu hér til að skoða sumarúthlutun